Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Grásleppuveiðimenn í Stykkishólmi álykta - Landssamband smábátaeigenda

Grásleppuveiðimenn í Stykkishólmi álykta

| Athugasemdir (0)

Fréttatilkynning frá Smábátafélaginu Ægi, Stykkishólmi

Fjölmennur fundur grásleppuveiðimanna í Stykkishólmi haldinn í Stykkishólmi 2. maí 2003 skorar á alla grásleppuveiðimenn að hunsa tilboð íslenskra framleiðenda um verðlækkun á hrognum. Í upphafi vertíðar buðu allir íslenskir framleiðendur verð sem almenn samstaða var um meðal grásleppuveiðimanna að væri viðunandi.
Frá því vertíð hófst hefur ekkert það gerst í grásleppuveiðunum, hvorki hérlendis né erlendis, sem réttlætir framangreinda verðlækkun.
Fundurinn fordæmir því harðlega þau vinnubrögð íslenskra framleiðenda að dreifa ósönnum fullyrðingum um veiðar og verð í nágrannalöndunum í því skyni að ná niður verði á hrognum til íslenskra grásleppuveiðimanna.
Fram kom á fundinum að veiðarnar eru í jafnvægi og verð á hrognum í samkeppnislöndum okkar í samræmi við viðmiðunarverð hér.

Til að bæta gráu ofan á svart hefur amk. einn íslenskur kaupandi grásleppuhrogna tilkynnt viðskiptavinum sínum um að verðlækkunin skuli ná til hrogna sem hann hefur þegar fengið afhend. Fyrir marga veiðimenn jafngildir það verðfellingu allrar veiði vertíðarinnar.

Samstaða skapaðist á fundinum að leita allra leiða til að fá viðunandi verð fyrir framleiðslu vertíðarinnar.
Kaus fundurinn starfshóp til að vinna málinu brautargengi.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231