Í dag er búið að verka söltuð grásleppuhrogn í 7.500 tunnur. Veiðin hefur verið mest á svæðinu frá Skaga og austur í Skjálfanda. Einnig hefur veiði í norðanverðum Faxaflóa verið ágæt.
Á sl. dögum hefur hins vegar hægt verulega á veiði, þannig eru húsvískir veiðimenn farnir að taka upp netin. Einn þeirra sem rætt var við segir betra að hætta nú og vera með öll net heil, heldur en að hanga á þessu lengur og verða fyrir netatjóni á tíma sem gefur litla veiði.
Á fundum með veiðimönnum á Ólafsfirði og Dalvík sl. laugardag, kom fram megn óánægja með þá fyrirætlan tveggja íslenskra framleiðenda, ORA og Vignir Jónsson, að lækka verð á hrognum aftur í tímann. Greinilegt er að menn ætla ekki að láta það yfir sig ganga.











Skrifa athugasemd