Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Lélegt á handfærin í Breiðafirði - Landssamband smábátaeigenda

Lélegt á handfærin í Breiðafirði

| Athugasemdir (0)

Handfæraafli í Breiðafirði er ekki svipur hjá sjón í ár miðað við sama tíma í fyrra. Þorskaafli í maí hefur á undanförnum árum verið góður og margir bátar í dagakerfi náð sínum besta afla í þeim mánuði. Að sögn Marteins Karlssonar í Ólafsvík á Magnúsi Árnasyni SH er langt síðan hann man eftir svo lélegum aflabrögðum í maí eins og nú hefur verið. Í fyrra veiddi hann 25 tonn í maí en er nú aðeins kominn með 2,5 tonn. Tíðarfarið hefur verið erfitt, en áhyggjuefnið er að nú er miklu minna af þorski á slóðinni heldur en verið hefur sl. ár. Marteinn bætti við að áberandi væri hvað grunnið væri dautt, hvorki síli né fugl sýnilegt.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is