Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Mun minni veiði í Noregi - Landssamband smábátaeigenda

Mun minni veiði í Noregi

| Athugasemdir (0)

Þær fréttir voru að berast frá Noregi (Norges Rafisklag) að grásleppuveiðin nú er mun minni en á sama tíma í fyrra. Veiðin til 4. maí er nú 231.000 lítrar, en var 348.000 lítrar á sama tíma á árinu 2002.
Þetta er norskum grásleppuveiðimönnum mikil vonbrigði og er fjöldi báta við veiðarnar meiri en nokkru sinni. Vaxandi veiði tveggja síðustu ára vakti mönnum vonir um góða vertíð.
Upphafsverðið á tunnu var 5000 norskar krónur, en hefur nú hækkað í 6000.- krónur norskar.
Íslenskir framleiðendur hafa tilkynnt verðlækkanir til íslenskra veiðimanna á þeim forsendum að veiði t.d. í Noregi sé gríðarleg og verð þar fallin. Hið rétta er að þessu er öfugt farið og því hlýtur að liggja beint við að hækka verðin til fyrra horfs.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231