Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Snæfell mótmælir rækjuveiðum í innanverðum Breiðafirði - Landssamband smábátaeigenda

Snæfell mótmælir rækjuveiðum í innanverðum Breiðafirði

| Athugasemdir (0)

Snæfell mótmælir rækjuveiðum í innanverðum Breiðafirði.

Smábátaeigendur í Snæfelli, félagi smábátaeigenda á Snæfellsnesi, mótmæla harðlega ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að heimila rækjuveiðar innan viðmiðunarlínu á Breiðafirði. Veiðar með dregin veiðarfæri skaða það viðkvæma lífríki sem þarna er og full eining hefur verið um að vernda. Þá hafa veiðarnar áhrif á göngu bolfisks á svæðið og skaða afkomumöguleika kyrrstæðra veiðarfæra, handfæra-, línu og netaveiða.
Þá er ákvörðunin óskiljanleg útfrá markaðslegu sjónarmiði þar sem í landinu eru miklar birgðir af óseldri rækju og óvísst um sölu á. Einnig hefur afurðarverð á rækju farið hríðlækkandi undanfarna mánuði og er því full ástæða til að draga úr rækjuveiði. Þá skal á það bent að rækjan er mikilvæg fæðutegund fyrir okkar dýrmætustu fisktegund, þorskinn og því enn brýnna að friða umrætt svæði.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231