Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Heimsmet í ófrelsi - Landssamband smábátaeigenda

Heimsmet í ófrelsi

Þrátt fyrir þá staðreynd að afli dagabáta hafi dregist saman á milli ára stefnir allt í að sjávarútvegsráðherra láti ákvæði laga um fækkun leyfilegra daga ganga eftir. Við blasir, að óbreyttu, að þeir megi veiða 19 daga á næsta fiskveiðiári.

Víða um heim eru til fáránlegar reglur um veiðitíma strandveiðiskipa og báta en yfirleitt er það á svæðum þar sem sjávarútvegur er svo fjarlægur stjórnvöldum að þeim er að einhverju leyti vorkunn vitleysan.

Eftir því sem næst verður komið eru 19 leyfilegir dagar standandi heimsmet hvað varðar niðurskurð í þessum efnum.

Varla þarf að geta þess að þetta blasir að auki við á sama tíma og verið er að auka aflaheimildir svo um munar í nokkrum tegundum.

Forysta stórútgerðarinnar hefur í langan tíma látið sem óð væri vegna afla þessara báta og jafnvel gengið svo langt að halda því fram að "umframafli" þeirra tefði fyrir uppbyggingu þorskstofnsins. Ítrekað hefur sú ótrúlega fullyrðing heyrst úr þeim herbúðum að þessir bátar væru í "frjálsri sókn".

Staðreyndin er hinsvegar sú að þessir bátar lifa við heimsmet í ófrelsi og með ólíkindum að á sama tíma og þessi staðreynd blasir við, guma stjórnvöld af því út um allan heim hversu frábært fiskveiðistjórnunarkerfið íslenska er.

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is