Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Mikil samstaða á Ísafjarðarfundi um línuívilnun - Landssamband smábátaeigenda

Mikil samstaða á Ísafjarðarfundi um línuívilnun

| Athugasemdir (1)

Fjölmennur fundur sem Elding, félag smábátaeigenda á Vestfjörðum Norður boðaði til í gærkveldi, 7.8. endurspeglaði að mönnum er gróflega misboðið hvernig sjávarútvegsráðherra hefur sett fram hugmyndir um með hvaða hætti hann hyggist setja á línuívilnun, eins og lofað var í aðdraganda kosninganna í vor.

Fundinn sátu stjórnarþingmennirnir Einar K. Guðfinnsson og Kristinn H. Gunnarsson, en bæjar- og sveitarstjórnarmenn af öllum Vestfjörðum, ásamt forsvarsmönnum sjávarútvegsfyrirtækja fylltu salinn.

Guðmundur Halldórsson, formaður Eldingar og hvatamaður fundarins var frummælandi og fór hann hörðum orðum um þann undanslátt sem ýmsir úr stjórnarliðinu hafa viðhaft við gefin kosningaloforð með sjávarútvegsráðherra fremstan í flokki.

Í kjölfarið tóku margir til máls um atburði líðandi stundar og voru allir á einu máli um nauðsyn þess að línuívilnun kæmist á nú strax á komandi fiskveiðiári, staðið yrði við gefin fyrirheit í þessum efnum.

Eftirfarandi ályktun var samþykkt með lófataki í lok fundarins:

Fundur vestfirskra bæjar- og sveitarstjóra, forystumanna í sjávarútvegi á Vestfjörðum og stjórnar Eldingar með stjórnarþingmönnum N-Vesturkjördæmis, haldinn á Ísafirði 7. ágúst 2003.

Fundurinn krefst þess að línuívilnun komi til framkvæmda eigi síðar en 1. nóvember nk. Fundurinn hafnar hugmyndum hæstvirts sjávarútvegsráðherra um að línuívilnun verði notuð sem skiptimynt fyrir byggðakvóta. Fundurinn minnir á stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna um byggðakvóta og línuívilnun.

Fundurinn telur að ein af veigamiklum forsendum núverandi stjórnarsamstarfs hafi verið sameiginleg afstaða stjórnarflokkanna um að koma á línuívilnun. Kjósendur hafi litið á slíkt sem alvöru aðgerð til varnar hinum dreifðu byggðum.

Að lokum minnir fundurinn á yfirlýsingu hæstvirts forsætisráðherra á fundi á Ísafirði 22. apríl sl.: "línuívilnun verður komið á strax í haust".

Ísafirði 7. ágúst 2003

Guðmundur Halldórsson
formaður Eldingar

1 Athugasemdir

Sæll Guðmundur.

Það er rétt að Davíð sagði að línuívilnun yrði tekin upp í haust en hann bætti því við, ef ekkert yrði því til fyrirstöðu. Menn eiga ekki að vitna í menn eftir hentisemi og segja einungis hálfa söguna. Ég held að flestir geti verið sammála um að það sé búin að myndast mikil fyrirstaða í þessu máli sem kemur í veg fyrir að það sé hægt að koma þessu á í haust.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231