Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Hrygningarstoppið ákveðið - Landssamband smábátaeigenda

Hrygningarstoppið ákveðið

| Athugasemdir (0)

8. ágúst sl. gaf sjávarútvegsráðuneytið út reglugerð um friðun hrygningar þorsks og skarkola á vertrarvertíðinni 2004. Þá var einnig gefin út reglugerð um hámarksstærð möskva í þorskanetum.
Í friðunarreglugerðinni kemur m.a. fram að allar veiðar innan 4ra sjómílna frá Stokksnesi vestur að 19°V eru bannaðar frá 8. apríl til og með 28. apríl og frá og með 17. apríl nær svæðið út í 12 mílur. Frá 19°V vestur um og norður að Skor eru dagsetningarnar 1. apríl til og með 21. apríl og frá og með 12. apríl til kl 10:00 21. apríl.
Veiðibann á öðrum svæðum eru frá og með 15. apríl til kl 10:00 30. apríl. Svæðin eru:
1. Ísafjarðardjúp innan línu Galtarviti í Straumnesvita.
2. Innan 3ja sjómílna frá Hornbjargsvita austur um og suður að Stokksnesi.
3. 3 mílur umhverfis Grímsey.

Nánari upplýsingar um hrygningarstoppið er að finna í reglugerð nr. 598, slóðin er
http://sjavarutvegsraduneyti.is/interpro/sjavarutv/sjavarutv.nsf/pages/rglnr598-2003fidunhrygningartorsk

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231