Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Er línuívilnun rétt handan við hornið? - Landssamband smábátaeigenda

Er línuívilnun rétt handan við hornið?

| Athugasemdir (0)

Haft er eftir Kristni H. Gunnarssyni varaformanni sjávarútvegsnefndar í Morgunblaðinu í dag að það eigi að vera hægt að taka upp línuívilnun til dagróðrabáta fyrir áramót. Í Fréttablaðinu í gær sagðist Kristinn reikna með að taka málið beint upp í sjávarútvegsnefnd http://www.althingi.is/dba-bin/nefnm.pl?nemenu=1&nefnd1=sj<hing1=. þegar til umfjöllunar verður frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Frumvarpið http://www.althingi.is/altext/130/s/0275.html fjallar um að andvirði svonefnds hafrannsóknaafla renni í sama sjóð og gjald vegna ólögmæts sjávarafla, auk þess er í frumvarpinu lagt til að heimilt verði að flytja eftirstöðvar af þorskeldiskvóta fiskveiðiársins 2002/2003 til fiskveiðiársins 2003/2004. Kristinn hyggst flytja breytingatillögu þar sem gert er ráð fyrir að línuívilnun verði komið á.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231