Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Slysatryggingar - Landssamband smábátaeigenda

Slysatryggingar

| Athugasemdir (1)

Í smábátaútgerðinni eru menn alltaf að leita leiða til að lækka kostnað og hagræða.
Í samtölum við smábátaeigendur hefur komið í ljós að allmargir eru með tvöfalda slysatryggingu fyrstu 2 bótamánuðina ef þeir slasast við útgerðina. Kannski er þetta meðvitað, en ef menn hafa ekki gert sér grein fyrir þessu er ástæða til að halda áfram lestri.
Skýringar á þessu eru þær að aðilar hafa keypt sér slysatryggingu af Tryggingastofnun ríkisins (greitt slysatryggingagjald sjómanna vegna fiskveiða) auk viðbótartryggingar á almennum markaði sem hækkar slysabætur.
Tryggingastofnun ríkisins greiðir bætur samkvæmt aflahlut sem launþeginn hefur orðið af í allt að 2 mánuði. Þegar útgerðaraðili, sem tekið hefur slysatryggingu hjá TR, er í vinnu hjá eigin fyrirtæki (ehf) og verður fyrir slysi á hann einnig rétt á greiðslu frá Tryggingastofnun ríkisins í jafnlangan tíma. Bæturnar miðast þá við reiknað endurgjald útgerðaraðilans ef ekki er um aflahlut að ræða.
Athygli er vakin á að dæmi eru um að slysatrygging með eins mánaða biðtíma eftir bótum er 40% dýrari en þegar biðtíminn er 2 mánuðir.

Hér með er þessu komið á framfæri í þeim tilgangi að benda mönnum á hugsanlega leið til hagræðingar sem og að vekja menn til umhugsunar um tryggingar.

1 Athugasemdir

Vakin er athygli á að trygging Tryggingastofnunar tekur til vinnuslysa sjómanna, en ekki slysa í frítíma.

Þeir sjómenn á smábátum sem eru með viðbótar-dagpeningatryggingu hjá Tryggingamiðstöðinni hf (TM) eru almennt með slysatryggingu sem gildir bæði við vinnu og í frítíma.

Nauðsynlegt er að hafa það í huga þegar metið er hvað biðtími eftir bótum á að vera langur.


Kveðja,

Sigurður Jónsson
Atvinnurekstrardeild
Tryggingamiðstöðin
Aðalstræti 6-8 · 101 Reykjavík
Sími 515 2105 · Fax 515 2050
GSM 862 1011
sigurdurj@tmhf.is · www.tmhf.is

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231