Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Umsögn LS til sjávarútvegsnefndar - línuívilnun - Landssamband smábátaeigenda

Umsögn LS til sjávarútvegsnefndar - línuívilnun

| Athugasemdir (1)

Sjávarútvegsnefnd Alþingis
Austurstræti 8 – 10
150 Reykjavík

12. desember 2003

Umsögn Landssambands smábátaeigenda (LS) um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, 428. mál, línuívilnun er eftirfarandi:

Landssamband smábátaeigenda telur að frumvarpið endurspegli ekki loforð stjórnarflokkana um línuívilnun sem gefin voru fyrir kosningar. Á frumvarpinu eru alvarlegir gallar sem leiða til þess að LS getur ekki mælt með samþykkt þess. Eftirtalin atriði gerir LS athugasemdir við:

1. Frumvarpið gerir ráð fyrir að ákveðið magn af þorski komi til ívilnunar – 3.375 tonn. Magninu er skipt niður á fjögur tímabil á árinu. LS hefur ætíð í baráttu sinni fyrir línuívilnun lagt til að afli sem kann að bætast við vegna hennar skuli ekki dregin frá útgefnum veiðiheimildum.

2. Við yfirferð frumvarpsins sl. laugardag var gengið út frá því sem vísu að mistök hefðu átt sér stað við gerð þess. Hér er átt við það sem kemur fram í 3. gr. frumvarpsins og orðast svo: „Við línuveiðar dagróðrabáta sem beita línu í landi má landa 16% umfram þann afla í þorski, ýsu og steinbít sem reiknast til aflamarks þeirra.“
Nú er það ljóst að ekki var um mistök að ræða.
Þetta ákvæði er gjörsamlega á skjön við umræðuna um línuívilnun og gengur mun lengra en samþykktir landsfundar og flokksþings stjórnarflokkanna, þar sem segir annars vegar að „línuívilnun til dagróðrarbáta og hins vegar „línuívilnun til dagróðrabáta þar sem beitt er eða stokkað upp í landi“.
Landssamband smábátaeigenda getur ekki samþykkt frumvarpið með svo þrönga skilgreiningu á því hverjir skuli njóta línuívilnunar. LS telur að nái línuívilnun ekki til uppstokkunar í landi og þar með báta sem róa með beitningatrekt, sé alls ekki verið að samþykkja þá línuívilnun sem kosningaloforð ríkisstjórnarflokkanna lutu að.

3. Í umræðunni um línuívilnun hefur ávallt verið gengið út frá því að allar tegundir yrðu innan línuívilnunar. LS harmar þá ákvörðun hstv. sjávarútvegsráðherra að einungis eru 3 tegundir felldar undir línuívilnun. LS hvetur sjávarútvegsnefnd til að breyta þessu þannig að hún nái einnig til karfa, keilu og löngu.

4. LS bendir á að sú prósenta sem fram kemur í frumvarpinu er langt frá því sem félagið og stuðningsmenn línuívilnunar hafa lagt til grundvallar.

5. Frumvarpið gerir ráð fyrir að línuívilnun komi í stað byggðakvóta. LS mótmælir því harðlega enda í hrópandi ósamræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar: „auka byggðakvóta og taka upp ívilnun fyrir dagróðrarbáta með línu“.


Að lokum vill LS taka fram að það eru félaginu mikil vonbrigði að úrlausn á vanda sóknardagabáta sé ekki að finna í frumvarpinu. Það hefur margsinnis komið fram og er óumdeilt að veiðikerfi sem felur í sér 10% árlega sóknarskerðingu og telur nú aðeins 19 sóknardaga er alls óviðunandi. LS leggur þunga áherslu á að sjávarútvegsnefnd standi að breytingatillögu á frumvarpinu, þar sem sóknardagakerfi handfærabáta verði útfært á sambærilegan hátt og unnið hafði verið með í sjávarútvegsráðuneytinu í samvinnu við LS fyrr á þessu ári.


Virðingarfyllst


______________________ _____________________
Örn Pálsson framkvæmdastjóri Arthur Bogason formaður

1 Athugasemdir

sammala

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231