Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Vestmannaeyingar ósáttir við uppsagnir skipaskoðunarmanna á landsbyggðinni - Landssamband smábátaeigenda

Vestmannaeyingar ósáttir við uppsagnir skipaskoðunarmanna á landsbyggðinni

| Athugasemdir (0)

Á fundi sem haldinn var í Vestmannaeyjum um öryggismál sjómanna í tengslum við landtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda, voru eftirfarandi tvær tillögur bornar fram og samþykktar með öllum greiddum atkvæðum:

Fundur um öryggismál sjómanna, haldinn í Vestmannaeyjum 27. nóv. 2003, skorar á stjórnvöld að endurskoða þá ákvörðun að leggja niður embætti skipaskoðunarmanna á landsbyggðinni. Fundurinn telur slíka ráðstöfun ekki til þess fallna að auka öryggi sjómanna.

Fundur um öryggismál sjómanna, haldinn í Vestmannaeyjum 27. nóv. 2003, lýsir yfir megnri óánægju sinni með það fjársvelti sem Landhelgisgæslan má þola og skorar á stjórnvöld að bæta úr því hið fyrsta.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231