Ýsuafli smábáta í desember var fimmtungi meiri en á sama tíma 2002, alls veiddust 1.467 tonn. Þorskaflinn minnkaði hins vegar verulega milli ára eða um tæp þúsund tonn, það er um 40%, var nú 2.244 tonn. Þessar upplýsingar koma fram í nýútkomnum aflatölum frá Fiskistofu. Helsta ástæða fyrir þessum sveiflum telja menn vera að almennt hafi bátarnir rúmar veiðiheimildir í ýsu og reyna því frekar að ná henni og spara þorskinn.
Nú þegar birtar hafa verið aflatölur fyrir fyrsta þriðjung fiskveiðiársins vantar um 500 tonn á að þorskaflinn nái því sem veitt var á sl. ári, aflinn nú 11.098 tonn, en ýsuaflinn hefur aukist um rúm 400 tonn var nú 6.350 tonn á móti 5.929 tonnum á tímabilinu 1. september – 31. desember 2002.











Skrifa athugasemd