Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Grásleppuveiðar hefjast 5. mars - Landssamband smábátaeigenda

Grásleppuveiðar hefjast 5. mars

| Athugasemdir (0)

Sjávarútvegsráðuneytið hefur tilkynnt með reglugerð hvenær má hefja grásleppuveiðar á komandi vertíð. Ráðuneytið tók að fullu tillit til óska Landssambands smábátaeigenda sem byggði sínar tillögur á samþykktum félagsfunda og aðalfundar LS.
Samfara breytingum sem orðið hafa með hækkandi sjávarhita virðist grásleppan koma fyrr til hrygningar heldur en áratuga hefð er fyrir. Á vertíðinni 2003 var ákveðið að hefja veiðar 1. apríl í Faxaflóa í stað 20. apríl. Breytingin heppnaðist vel og var veiði góð á fyrstu dögum vertíðarinnar.
Á vertíðinni sem nú fer í hönd verður veiðitími færður fram á 4 öðrum veiðisvæðum. Við Reykjanes sunnan Garðskaga má hefja veiðar 5. mars í stað 20. mars á sl ári. Á utanverðum Breiðafirði verður veiðitími sá sami og í Faxaflóa 1. apríl – 29. júní, en þar hófust veiðar 20. apríl á síðustu vertíð. Við Vestfirði frá Bjargtöngum að Horni hefjast veiðar 5. apríl í stað 20. apríl eins og verið hefur undanfarin ár. Á Ströndum og við Húnaflóa er einnig heimilt að hefja veiðar fyrr, 15. mars en var 1. apríl á síðustu vertíð. Á þeim tveimur veiðisvæðum sem loka þessari upptalningu eru annars vegar svæðið frá Skagatá að Fonti og hins vegar frá Fonti suður að Hvítingum. Þar verður veiðitími óbreyttur, ef undan er skilið Bakkaflói og Vopnafjörður en þar hófust veiðar 30. mars í fyrra, nú er veiðitími sá sami á báðum svæðunum 20. mars – 17. júní.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231