Auðlindin – fréttaþáttur um sjávarútvegsmál – 15. desember 2003 fjallaði um mál málanna þá stundina – línuívilnun.
Rætt var við Birgi Kristinsson forstjóra Nýfisks í Sandgerði í tilefni þess að forstjóri Vinnslustöðvarinnar, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, hélt því fram að trollfiskur seldist á hærra verði en línufiskur á mörkuðum. Útfrá því alhæfði Sigurgeir Brynjar að það væri ávísun á minni verðmætasköpun að auka vægi línuveiða.
Birgir var fyrst spurður um verðin á mörkuðunum. Hann sagði: „ég var fyrir stuttu að taka það saman hjá okkur að síðustu 3 árin var meðalverðið á þorski sem keypt var á fiskmörkuðunum rétt tæpar 200 kr/kg. En þetta er þorskur sem keyptur er af línubátum sem róa héðan af SV-horninu“.
Aðspurður um hver væri skýringin á þessari niðurstöðu Sigurgeirs Brynjars sagðist hann ekki vita hvernig hann fengi þessa niðurstöðu. Birgir sagðist sitja á fiskmarkaðinum á hverjum degi og versla af markaðinum. Hann sagði trollfisk vera hverfandi á mörkuðum, mjög lítið af honum og þá sagðist hann ekki hafa séð að trollfiskur seldist á hærra verði, „þegar ég horfi á þetta er trollfiskur um 20% ódýrari en línufiskur“.
Stjórnandi Auðlindarinnar, sem að þessu sinni var Haraldur Bjarnason, spurði Birgi hvert fiskurinn færi frá þeim í Nýfiski og hverjar viðtökur kaupenda væru.
Birgir sagði þá vera að selja inn á Evrópu - Belgíu, Frakkland, Holland, Sviss. Birgir sagðist geta fullyrt hvar sem væri og sýnt fram á að þeir væru að fá þetta 20-25% hærra verð fyrir sínar afurðir heldur en þeir sem selja trollfiskinn.
Aðspurður hvort kaupendur settu einhver skilyrði svaraði Birgir því til að kaupendur færu fram á að þetta væri línufiskur, þeir vilja ekki trollfiskinn allavega ekki frá okkur.
Svo mörg voru þau orð og undirstrikar afburða gæði línufisksins sem skilar þjóðinni hærra útflutningsverðmæti heldur en trollfiskur.











Skrifa athugasemd