Í nýútkomnum aflatölum Fiskistofu kemur fram að krókaaflamarksbátar hafa fiskað vel nú í janúar miðað við í fyrra. Þeir bættu við sig alls 1.168 tonnum í þorski, ýsu og steinbít sem er um 40% aukning milli ára. Þorskafli bátanna í janúar varð 2.570 tonn sem er tæpum 30% meira en í fyrra, þeir fiskuðu 1.403 tonn af ýsu sem er 523 tonna aukning og steinbítsaflinn í janúar sl. varð 207 tonn á móti 139 tonnum í fyrra.









Skrifa athugasemd