Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Hugmyndum fjármálaráðherra um afnám sjómannaafsláttar mótmælt. - Landssamband smábátaeigenda

Hugmyndum fjármálaráðherra um afnám sjómannaafsláttar mótmælt.

| Athugasemdir (0)

Stjórn Félags smábátaeigenda á Akranesi hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun um sjómannaafslátt:

Öllum hugmyndum um afnám
sjómannaafsláttar harðlega mótmælt. Sjómannaafslátturinn er enn og aftur kominn á dagskrá Alþingis og nú er
dagskipunin einföld, sjómannaafsláttur skal afnuminn. Stjórn Félags
smábátaeigenda á Akranesi mótmælir harðlega hugmyndum fjármálaráðherra um niðurfellingu sjómannaafsláttar. Stjórnin hvetur þingflokka ríkisstjórnar sem og stjórnarandstöðu að hafna hugmyndum ráðherrans.
Stjórn Félags smábátaeigenda á Akranesi tekur heilshugar undir framkomnar tillögur fjölmargra sjómannafélaga um sama efni og hvetur alla sjómenn, jafnt á minni bátum sem og á stærstu skipum, til að standa fast á áratugalöngum réttindum - sjómannaafslættinum.

Akranesi 19. febrúar 2004

Gísli S. Einarsson formaður“

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231