Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Lágmarksviðmiðunarverð grásleppuhrogna. - Landssamband smábátaeigenda

Lágmarksviðmiðunarverð grásleppuhrogna.

| Athugasemdir (0)

Grásleppunefnd LS ( http://www.smabatar.is/sida/4.shtml ) fundaði í dag. Fyrir fundinum lá meðal annars að ræða viðmiðunarverð á grásleppuvertíðinni. Skoðanaskipti nefndarmanna báru merki þess hversu vandasamt viðfangsefnið var.
Fram kom að ástandið nú í byrjun vertíðar er að mörgu leyti líkt og við upphaf síðustu vertíðar. Birgðastaða er með lægra móti og mikill áhugi framleiðenda á viðskiptum við veiðimenn. Þá höfðu nefndarmenn einnig að leiðarljósi þau sjónarmið framleiðenda að afar erfitt hafi verið að ná fram hækkun á mörkuðum á sl. ári í kjölfar hækkandi hráefnisverðs.
Þegar á allt þetta var litið varð niðurstaða fundarins sú að lágmarksviðmiðunarverð á vertíðinni 2004 verði ekki lægra en á sl. vertíð.
Landssamband smábátaeigenda mun á næstu dögum gefa út
skilaverðsútreikning sem byggður verður á þessari niðurstöðu.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231