Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Grásleppuveiðar byrja í Faxaflóa og Breiðafirði - Landssamband smábátaeigenda

Grásleppuveiðar byrja í Faxaflóa og Breiðafirði

| Athugasemdir (0)

Á morgun 1. apríl verður heimilt að hefja grásleppuveiðar í Faxaflóa og í utanverðum Breiðafirði. Að sögn Skarphéðins Árnasonar trillukarls á Akranesi, sem fagnaði áttræðisafmæli sínu í dag, kvaðst hann ekki vera viss um að hann legði netin í fyrramálið. Hann sagðist mundu verða á veðurvaktinni í nótt en hætt er við að hann gæti lagst í vestan átt eftir tvo daga og ef það gengur eftir er ekki gott að eiga nýlögð net í sjó.
Eftir morgundaginn verða veiðar hafnar á öllum veiðisvæðum nema á Vestfjörðum en þar verður heimilt að leggja netin 5. apríl og í innanverðum Breiðafirði en þar má byrja 10. maí.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231