Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Klettur og Elding funda - Landssamband smábátaeigenda

Klettur og Elding funda

| Athugasemdir (0)

Næstkomandi sunnudag 7. mars halda tvö svæðisfélög LS fundi.

Klettur – félag smábátaeigenda frá Ólafsfirði að Tjörnesi - heldur sinn fund á Fiðlaranum á Akureyri og hefst hann kl 16:00. Framkvæmdastjóri LS mætir á fundinn og fer yfir stöðuna í þeim málum sem efst eru á baugi. Þar má nefna sóknardagakerfið, línuívilnun og grásleppumál. Þá verður einnig fjöldi annarra mála til umræða, svo sem sjómannaafsláttur, skipaskoðun o.fl.
Formaður Kletts er Pétur Sigurðsson

Elding – félag smábátaeigenda á Vestfjörðum norður – fundar á Hótel Ísafirði og hefst sá fundur einnig kl. 16:00. Á fundinn hafa verið boðaðir fulltrúar fjögurra skoðunarstofa sem hyggjast hasla sér völl við skoðun smábáta. En eins og fram hefur komið var síðasti starfsdagur Siglingastofnunar á því sviði 29. febrúar sl. Þá verður til umræðu nýgerður samningur milli 11 smábátaútgerða í Bolungarvík og Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur. Einnig er á dagskrá fundarins kynning á nýrri beituverksmiðju og framleiðslu hennar.
Formaður Eldingar er Guðmundur Halldórsson

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á fundina og fræðast um það sem efst er á baugi í málefnum smábátaeigenda, taka þátt í umræðum og hafa þannig áhrif á gang mála.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231