Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kristinn áréttar stuðning sinn við gólf í sóknardagakerfið - Landssamband smábátaeigenda

Kristinn áréttar stuðning sinn við gólf í sóknardagakerfið

| Athugasemdir (4)

Í dag var framhald 1. umræðu um frumvarp Grétars Mar Jónssonar og Jóns Bjarnasonar um gólf í sóknardagakerfið. Til máls tóku stjórnarandstöðuþingmennirnir Guðjón A. Kristjánsson, Sigurjón Þórðarson og Jóhann Ársælsson og stjórnarþingmaðurinn Kristinn H. Gunnarsson. Það vakti athygli að Kristinn lýsti því yfir að ef ekki kæmi ásættanleg niðurstaða út úr viðræðum Landssambands smábátaeigenda og sjávarútvegsráðherra á næstu dögum, yrði að byggja á framkomnu frumvarpi til lausnar á vanda eigenda sóknardagabáta. Þá gerði Kristinn einnig að umtalsefni nefndarálit meirihluta sjávarútvegsnefndar sem birtist í umsögn hans við línuívilnun. Kristinn sagði að þar væri gengið út frá lagfæringu á núgildandi sóknardagakerfi þannig að í það yrði sett gólf samhliða sóknartakmörkunum.
Til upprifjunar skal minnt á að tilvitnað nefndarálit er eftirfarandi:
„Málefni svonefndra dagabáta hafa verið rædd í nefndinni. Ekki reyndist nú unnt að leggja til tillögur um framtíðarskipan í málefnum þeirra sem þó er mikilvægt verkefni. Meiri hlutinn leggur áherslu á að vinnu við það verði hraðað.“

4 Athugasemdir

Umræðan á Alþingi um mál sóknardagabáta er til skammar. Í sömu ræðu talar Kristinn Gunnarsson um að dagakerfið verði að halda og helst með 23daga gólfi, halda þurfi vörð um það með öllum ráðum til að kvótagrýlan nái ekki að gleypa þetta stórkostlega kerfi sem veitir mönnum svo mikið frelsi svo ekki sé minnst á möguleikana á nýliðun í greininni. Hann vill hinnsvegar takmarka vélastærð og rúllufjölda til að menn veiði nú ekki of mikið. Ég spyr afhverju eru menn að berjast fyrir fjölgun dagana ef afköstin eiga helst að standa í stað eða minnka? Hverjir hagnast á þessu og hverjir tapa? Varðandi nýliðun þá efast ég um að Kristinn hafi kynnt sér það nýlega hvað þokkalegur dagabátur kostar. Guðjón Arnar sagði að örfáir dagakallar væru að reyna að væla út kvóta hjá Ráðherra bara til að selja og hagnast á, hann ætti að kynna sér málið betur áður en hann gerir sig að fífli í ræðustól Alþingis í næstu umræðu. Ef einhverjir þingmenn lesa þetta bendi ég þeim á að skoðanir forystumanna LS endurspegla ekki endilega skoðanir okkar dagabátaeigenda þótt foringjarnir haldi annað. Ég mæli með því að Arthur eða Örn fari að sjá sóma sinn í því að svara þeim spurningum sem bornar eru upp hér á síðunni, td þeim sem Óttar Yngvarsson hefur margoft komið með undanfarnar vikur í staðinn fyrir að æða um bæinn og ljúga að þingmönnum sem ekki hafa getu né vit til að fjalla um þessi mál, hvað þá að greiða um það atkvæði. Ég spyr líka, hvar er skoðanakönnunin sem búið var að lofa um kvótasetningu dagabáta. Það á sennilega að geyma hana þangað til dagakerfissinnaðir frjálslyndir rugludallar eru búnir að baka þetta 23daga aumingjakerfi sem þá dreymir um. Það hlýtur að vera hægt að leifa mönnum að velja um það hvort þeir vilji kvótasetningu og gera sinn bát út eftir aðstæðum eða 23daga kerfi með endalausum takmörkunum boðum og bönnum. Ég legg til að það verði kallað Farlama fiskimannasambandið og Guðjón Arnar verði formaður.

Ég hélt að mönnum hefði staðið til boða að velja á milli kvóta og daga á sínum tíma, afhverju valdir þú þá ekki kvóta á sínum tíma þegar það var í boði fyrst dagarnir eru svona hræðilegir?

Ég veit til þess að menn geti selt dagabátinn,víst það er svo hátt verð á þeim og keyft sig inní kvótakerfi og látið okkur í friði sem viljum vera í þessari hörmung.

Er ekki rétt að fara drífa þessa skoðana könnun af stað. Eftir hverju er eiginlega verið að bíða?

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231