Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Krókur boðar til fundar - Landssamband smábátaeigenda

Krókur boðar til fundar

| Athugasemdir (0)

Á morgun, þriðjudag, heldur Strandveiðifélagið Krókur almennan félagsfund í Hópinu Tálknafirði og hefst hann klukkan 20:30. Framkvæmdastjóri LS mun greina fundarmönnum frá stöðu mála sem efst eru á baugi. Rætt verður um sóknardagakerfið, línuívilnun, grásleppumál, skipaskoðun o.fl. Fulltrúum skoðunarstofa sem fengið hafa starfsleyfi hefur verið boðið að mæta. Félagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn, taka þátt í umræðum og hafa þannig áhrif á gang mála.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231