Í dag mælti sjávarútvegsráðherra fyrir tveimur frumvörpum. Annars vegar er það frumvarp um veiðieftirlitsgjald þar sem lagt er til að það verði lagt niður 1. september nk. og hins vegar um þróunarsjóðsgjald sem samkvæmt frumvarpinu skal aflagt á sama tíma. Ekki er það svo að frumvörpin verði til að létta undir með útgerðinni því á sama tíma og þau taka gildi verður lagt á sérstakt veiðigjald. En eins og menn muna samþykkti Alþingi breytingu á lögum um stjórn fiskveiða á árinu 2002 þar sem kveðið er á um að eigendur skipa skuli greiða gjald af úthlutuðum veiðiheimildum eða lönduðum afla þegar ekki er um úthlutun að ræða.
Rétt er að vekja athygli á að í frumvarpinu um veiðieftirlitsgjald er ákvæði sem heimilar Fiskistofu að innheimta sama gjald fyrir flutning á sóknardögum milli skipa og fyrir flutning aflahlutdeildar og krókaaflahlutdeildar. Í athugasemdum frumvarpsins segir að þetta sé gert til að gæta samræmis milli aðila sem stunda fiskveiðar.











Skrifa athugasemd