Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Skipaskoðun - Sýni skoðunarstofa ehf. fær starfsleyfi - Landssamband smábátaeigenda

Skipaskoðun - Sýni skoðunarstofa ehf. fær starfsleyfi

Landssambandi smábátaeigenda hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Sýni skoðunarstofu ehf.

„Þann 1. mars sl. breyttust reglur um skipaskoðun hér á landi. Sama dag fékk Sýni skoðunarstofa ehf. starfsleyfi til reksturs faggiltrar skoðunarstofu á sviði skipaskoðunar á skipum og bátum undir 400 brúttótonnum frá Siglingastofnun. Skipaskoðun var áður á hendi Siglingastofnunar en færist nú yfir til einkarekinna skoðunarstofa.

Þrír skoðunarmenn með víðtæka reynslu á sviði skipaeftirlits hafa verið ráðnir til starfa hjá Sýni á skipaskoðunasviðinu. Það eru þeir Herbert Bjarnason, skipatæknifræðingur, Einar J. Hilmarsson, vélstjóri og Óli Austfjörð, rafvirkjameistari. Sjá mynd

Sýni skoðunarstofa ehf hefur sinnt skoðunum á aðstöðu, hreinlæti og innra eftirliti vinnsluleyfishafa í sjávarútvegi síðan 1998, en þetta nýja svið mun standa útgerðarmönnum til boða og stuðla að einföldun og hagræðingu á skipulagi og tilhögun eftirlits í skipum og bátum þeirra.

Frekari upplýsingar gefa Reynir Þrastarson, framkvæmdastjóri (sími 590-6990, gsm 899-4291, reynir@adalskodun.is ) og Herbert Bjarnason, tæknistjóri (síma 590-6990, gsm 8678628, herbert@adalskodun.is )

Sýni skoðunarstofa ehf er faggild skoðunarstofa á sviði sjávarútvegs og er staðsett á Hjallahrauni. Sýni er dótturfyrirtæki Aðalskoðunar hf. sem rekur bifreiðaskoðun víða um land og sinnir einnig markaðseftirliti með rafföngum og hættulegum vörum.“

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is