Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Skoðunarstofur keppast við að ná smábátaeigendum í viðskipti - Landssamband smábátaeigenda

Skoðunarstofur keppast við að ná smábátaeigendum í viðskipti

| Athugasemdir (0)

Svæðisfélög Landssambands smábátaeigenda eru þessa dagana upptekin við að ná samningum f.h. félagsmanna um skoðun báta í þeirra eigu. Þannig hefur stjórn stærsta svæðisfélag LS, Snæfell, umboð 118 félagsmanna til að leita eftir tilboðum í skipaskoðun. Áætlar stjórn félagins að koma saman nk. sunnudag og meta tilboðin og í framhaldi að tilkynna félagsmönnum hvaða tilboði verður tekið.
Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni hafa allar 4 skoðunarstofurnar sem fengið hafa starfsleyfi til skoðunar upplýst um gjaldskrá. Því verður áhugavert að vita hversu mikið þau meta til verðlækkunar þegar jafn stór biti er í boði og hjá þeim Snæfellingum.
Þess má geta að í reglugerð sem samgönguráðherra undirritaði 5. febrúar sl., um starfshætti faggiltra skoðunarstofa skipa og búnaðar, er honum heimilt að setja gjaldskrá fyrir hámarksgjaldtöku við skipaskoðanir að fenginni umsögn hagsmunaaðila.
Það er von smábátaeigenda að samkeppni þeirra 4 skoðunarstofa sem nú keppast um viðskiptin leiði til sanngjarnrar gjaldtöku sem verði viðunandi fyrir þá.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231