Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Snæfell og Skalli funda - Landssamband smábátaeigenda

Snæfell og Skalli funda

| Athugasemdir (0)

Á morgun, fimmtudag, heldur Snæfell – félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi – fund í Ólafsvík. Fundurinn verður haldinn á Hótel Ólafsvík og hefst kl. 20:00. Formaður og framkvæmdastjóri LS hafa verið boðaðir á fundinn og munu gera mönnum grein fyrir stöðu þeirra mála sem efst eru á baugi. Þar er helst til að taka sóknardagakerfið, línuívilnun, grásleppumál, skipaskoðun o.fl. Þá hefur fulltrúum skoðunarstofa verið boðið á fundinn og gefst fundarmönnum því ágætt tækifæri til að fræðast um hið nýja fyrirkomulag á skipaskoðun. Hvernig þjónustu verður háttað, gjaldskrá ofl. sem heyrir til þessara mála.
Formaður Snæfells er Bergur Garðarsson

Næstkomandi sunnudag 14. mars verður fundur í Skalla. Fundurinn verður á Sauðárkróki og hefst kl. 14:00. Framkvæmdastjóri LS mætir á fundinn sem einkum mun fjalla um breytt fyrirkomulag á skipaskoðun og grásleppumál. Þá þyrstir fundarmenn örugglega eftir að fá upplýsingar um gang mála varðandi breytingar á sóknardagakerfinu og hvers vegna kosningaloforð um línuívilnun hafi ekki skilað sér til allra dagróðrabáta sem beita eða stokka upp í landi.
Formaður Skalla er Hilmar Zophaniasson

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á fundina og fræðast um það sem efst er á baugi í málefnum smábátaeigenda, taka þátt í umræðum og hafa þannig áhrif á gang mála.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231