Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Sóknardaganefnd LS fundar með sjávarútvegsráðherra - Landssamband smábátaeigenda

Sóknardaganefnd LS fundar með sjávarútvegsráðherra

| Athugasemdir (9)

Í dag var haldinn í sjávarútvegsráðuneytinu 2. fundur sóknardaganefndar LS og sjávarútvegsráðherra. Áfram var rætt um stöðu sóknardagabáta sem að óbreyttum lögum þurfa að þola áframhaldandi fækkun sóknardaga. Niðurstaða varð engin á fundinum en ákveðið að funda að nýju í síðari hluta næstu viku.
Á milli funda verður m.a. skoðað hvaða áhrif hugmyndir um fækkun daga við stækkun véla hefðu haft, ef þær hefðu komið til framkvæmda fyrir 2 árum.

9 Athugasemdir

Sælir sóknarnefnd,þessar útskýringar eru mjög ræfilslegar og stuttorðar,hvað sagði ráðherran við stöðu sóknardagabáta,og hvað er verið að tala um stækkum véla ef þær hefðu komið fyrir 2 árum,missa bátar fleiri daga sem stækkuðu vélar fyrir 1-2 árum,(mér skylst að það hefði verið skifts á gögnum),hvað lagði hann til,eitthvað hefur hann sagt ekki er hann þögull sem gröfin.

Góðan daginn sóknardaganefnd
Ég skil ekki þetta hángs,þetta gengur altaf hægt.
Einn fundur á viku.Mér finst þið þurfið að láta meiri kraft í viðræðurnar, ef á að klára eitthvað.
Áður en þinginu lýkur.Ákverju er ekki hægt að fá út með símkönnun, kvort áhugi er fyrir kvótasetningu.Að mínu áliti yrði kvótasetning betri,heldur en fækkun daga og vindna sem má ekki verða meiri.Ef kvóti væri betra að fá lán og sameina báta.Eins auðveldara fyrir þá sem vildu hætta.Kveðja Óli Bjarni

Á fundi sem haldin var hjá smábátafélaginu Snæfelli skoraði fundurinn á LS að láta framkvæma óháða skoðanakönnun um afstöðum eiganda sóknardagabáta um „framtíðarveiðikerfi“ þeim til handa.

Mig langar að spyrja forust LS hvort félagið hyggst verða við þessari áskorun Snæfells og þá hvenær?

Einnig vil ég ÍTREKA spurningar til forsvarsmanna LS sem beint var til þeirra hér á heimasíðunni 13 mars sl. (Ég geri ráð fyrir að þeir veiti því athygli sem þar er skrifað)

1) Ef samið er um lausn á dagakerfinu þ.e. með gólfi í dagana þá hlítur að vera gert ráð fyrir að heildarafli bátanna fari ekki fram úr ákveðinni viðmiðun. Ef LS er að semja um gólf í daganna gegn því að ekki verði nein sóknaraukning frá því sem verið hefur þá hlítur umræðan með dagakerfinu að snúast um að bátarnir veiði ekki meira en 11-12 þús tonn á ári. Því er þá ekki raunhæft að þessir bátar fái að veiða um 9 þús tonn í kvótakerfi með þeirri hagræðingu sem í því felst?

2. Telur LS það rétta leið að láta kvóta- og grásleppukarla álykta um málefni sóknardagabáta á aðildarfélagsfundum LS?

3. Finnst LS ekkert athugavert við þá aðferðarfræði sína að boða til félagsfunda um allt land og safna ályktunum svæðisfélaga um stuðning við 23 daga gólf í sóknardagakerfið í krafti kvóta- og grásleppukarla?

4. Af hverju er ekki farin sú lýðræðislega leið innan LS að leyfa dagabátaeigendum að álykta sjálfir um sín mál án íhlutunar kvóta- og grásleppukarlanna sem eru með öllu vanhæfir til slíks?

Sælir verið þið í sóknardaganefnd.
Mér leikur forvitni á að vita hvað fer fram á þessum fundum ykkar.
Hvernig gengur þetta fyrir sig? Segið þið: "Við viljum 23ja daga gólf í kerfið" og ráðherra svarar:"Nei". og svo er þagað þangað til fundurinn er búinn?? Eða eruð þið eitthvað að færast nær hvor öðrum í viðræðunum?
Hvað ber í milli? Eru einhverjar líkur á því að það náist samningar um 20 - 23 daga gólf?
Menn þurfa að fara að fá botn í þetta, sérstaklega nú þegar umræður eru um hvort væri skárri kostur, kvóti eða dagar. Það er nefnilega ekki sama gólf eða gólf og að sjálfsögðu ekki heldur kvóti eða kvóti.
Menn þurfa að fara að sjá nokkuð skýrt um hvað er verið að ræða.
Kveðja
Örvar Marteinsson

Já þið eruð þögglir eins og gröfin en einhverjar pælingar eru með vélastærðirnar það skildi þó ekki vera að ég hafi verið sannspár þegar ég sagði á fundi í Ólafsvík að bátur með 200 h vél og minna fengju 23 daga gólf og bátur með 300 h vél fegni 21 dags gólf, bátur með 400 h fengi 19 daga og bátur með 500 h og yfir með 17 daga gólf og það sé afturvirkt um 2 ár.
Eitt er víst að sjávarútvegsráðherra vill láta veiða minna og að fækkun vinda aðeins 5 í bát hefur ekkert að segja þessir 5 bátar sem eru með fleiri en 5 vindur munu kanski veiða einhvað minna.
En vélastærðar takmarkanir eru að sjálfsögðu góð leið til að minnka veiði.
Þá koma pælingar hjá mér, minni vélar = styttra farið, smærri fiskur og minna aflaverðmæti.
Færri dagar (500 h vél) = styttra farið (spara tíma), smærri fiskar, minna aflaverðmæti (meira magn, minni gæði.)
Semjið bara ekki af ykkur þið hafið víst "umboð" frá dagabátaeigendum.

Hallo drengir,,,ég veit ekki hvort ég á að hlæja
eða grenja,,,ég vil fá einhver góð rök fyrir þessari vitleisu,,,Óli Bjarni ég held að þó að þú hefðir bara 1 dag á bátunum þínum og jafnvel enga rúllu þá yrðu samt 100 tonna afli eftir sumarið,,
Óttar Már þótt þessir bátar fengju 9 þús tonn í kvóta þá er ég viss um það að til þess að landa þessum 9 þús tonnum myndu þeir fiska 11 þús tonn
þ.a.s. 2 þús tonn aftur í sjóinn,,,,,hvaða hagræðing er í því???????og fyrir hvern er hún.
Og Torfi það skipti engu máli þótt ég snéri tölvu
helvítinu á hvolf þá botnaði ég ekkert í þínum skrifum.

Kveðja G K Guðmunds

Góðan dag

Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart að menn með góða reynslu vilji kvóta. Á þeim LS aðalfundum sem ég hef farið á hefur umræðan um kvóta ekki verið uppi á borðinu. Heldur ekki hjá sóknardaganefnd sem starfaði á fundunum þar sem margir dagabátaeigendur áttu sæti. Heldur voru menn sammála um að reyna að verja kerfið. Það fór viðræðunefndin við ráðherra með í farteskinu.Að halda dagakerfinu en ekki biðja um að búnir yrðu til peningar fyrir þá sem bestu reynsluna hafa.

Sælir G K og Þröstur
Gott og vel, það getur hver haft sín skoðun á hvaða kerfi hentar smábátum best. Það er eðlilegt að allir smábatar vinni í sama kerfi. Það er einfaldast og þægilegast fyrir margra hluta sakir sem ekki ætti að þurfa telja upp fyrir ykkur. Lang stærsti hluti smábátanna er í krókaflamarki og una því vel. Hvað segir það ykkur snillingunum?
Ég held að það þurfi ekki að hafa fleiri orð um það.

Mikið ofboðslega finnst mér skrítið að það skuli enginn úr þessari svokölluðu daganefnd og eða forystunni koma með einhver svör við þeim spurningum sem lagðar hafa verið hér fram!!
Okkur dagaköllum kemur þetta bara kannski ekki við eða hvað?Þeir hafa jú "umboð" til að klára þetta mál við ráðherra.
Það hlýtur að vera kappsmál að klára þessar viðræður áður en vertíð hefst það er nú bara rétt vika í það.Þannig að tíminn er naumur.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231