Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Strandamenn álykta - Landssamband smábátaeigenda

Strandamenn álykta

| Athugasemdir (0)

Föstudaginn 20. febrúar var haldinn á Hólmavík fundur í Ströndum – félagi smábátaeigenda í Strandasýslu. Félagsmenn fjölmenntu á fundinn og urðu umræður líflegar. Framkvæmdastjóri LS fór yfir það sem efst er á baugi í málefnum smábátaeigenda. Frá áramótum hefur ítrekað verið óskað eftir fundi með sjávarútvegsráðherra um málefni sóknardagabáta. Það er loksins nú, þegar þetta er skrifað 1. mars, sem boðað hefur verið til fundar. Trillukarlar á Ströndum voru ánægðir með áherslupunkta LS í væntalegum viðræðum og lögðu á það áherslu að ekki ætti að kvika frá kröfunni um gólf í sóknardagakerfið, einkum væri það mikilvægt nú þar sem handfæraafli væri farinn að minnka á grunnslóð. Lýst var ánægju með að sjávarútvegsráðherra hefði lagt fram frumvarp um línuívilnun sem nú væri orðið að lögum. Það væri þó ljóður á því ágæta máli að trúlega þyrfti Fiskistofa að gera út erindreka til að leiða menn í gegnum þann reglufrumskóg sem búinn hefði verið til í kringum málið.

Greinilegt var að Strandamenn bíða óþreyjufullir eftir grásleppuvertíðinni, en vertíðin 2003 gaf veiðimönnum þar vel í aðra hönd. Þeir tóku undir orð framkvæmdastjóra LS að óvarlegt væri að hefja veiðar fyrr en trygging væri fyrir sölu á væntanlegum afla á því verði sem tilkynnt hefði verið.
Í lok fundar var samþykkt ályktun þar sem mótmælt er áformum fjármálaráðherra um að afnema sjómannaafslátt. Fundarmenn tóku heilshugar undir framkomnar ályktanir um það mál og skora á ráðherrann að draga hugmyndir sínar umsvifalaust til baka. Staða sjómanna og útgerða væri erfið um þessar mundir sem lýsti sér best í mikilli lækkun á útflutningsverðmæti sjávarafurða. Því væri það algerlega úr takt við starfsumhverfi greinarinnar að fjármálaráðherra hygðist gera róðurinn enn erfiðari með aukinni skattbyrði á sjávarútveginn.
Formaður Stranda er Haraldur Ingólfsson Drangsnesi.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is