Í gærkvöldi efndi Strandveiðifélagið Krókur til fundar á Tálknafirði. – Félagsmenn fjölmenntu á fundinn og tóku virkan þátt í umræðum.
Til fundarins höfðu verið boðaðir fulltrúar frá þeim fjórum skoðunarstofum sem Siglingastofnun hefur veitt starfsleyfi. Fulltrúar þeirra kynntu starfsemi sinna fyrirtækja, veittu fundarmönnum innsýn í verðskrá stofanna og svöruðu fyrirspurnum fundarmanna. Allir tóku þeir það skýrt fram verð væru byggð á viðmiðunargjaldskrá og afsláttur yrði veittur ef fram kæmi fýsilegur pakki frá Króki.
Eftirfarandi kom fram varðandi gjaldskrá:
Frumherji hf – Guðmundur Guðmundsson
< 8 m kr. 28.900-
8 – 10 m kr. 32.950-
10 – 15 m kr. 41.700-
Skipaskoðun ehf – Stefán Guðsteinsson
6 – 8 m kr. 25.000-
8 – 15 m kr. 35.000-
Skipaskoðun Íslands – Hálfdán Henrysson
< 8 m kr. 22.000-
8 – 15 m kr. 35.000-
SÝNI Skoðunarstofa ehf – Einar Hilmarsson
< 8 m kr. 31.000- hreinlætisskoðun innifalin
8 – 10 m kr. 36.000- “ “ “ “
> 10 m kr. 46.000- “ “ “ “
Að lokinni kynningu samþykkti fundurinn eftirfarandi:
Félagsfundur í Strandiveiðifélaginu Króki – samþykkir að fela stjórn félagsins að leita eftir tilboðum í skoðun báta félagsmanna. Tilboðið verði lagt upp á þann veg að sem flestir félagsmenn verði þátttakendur. Félagið áskilur sér að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.











Skrifa athugasemd