Árið 2003 virðist hafa verið gjöfult fyrir grásleppuveiðimenn og framleiðendur kavíars borið saman við 2002. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands varð heildarútflutningsverðmætið 1.348 milljónir, hafði aukist um 412 milljónir frá árinu 2002. Í tölum Hagstofu kemur í ljós að verðhækkun saltaðra hrogna til útflutnings var 8,7% og kavíarinn hækkaði um 14,5% í Evrum talið.
Greinilegt að útflytjendur og framleiðendur hafa staðið sig vel í markaðsmálum ekki síst þegar tekið er mið af því að flestar sjávarafurðir hafa lækkað í verði á þessum tíma.











Skrifa athugasemd