Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Félag smábátaeigenda á Austurlandi sendir umsögn til sjávarútvegsnefndar - Landssamband smábátaeigenda

Félag smábátaeigenda á Austurlandi sendir umsögn til sjávarútvegsnefndar

| Athugasemdir (0)

Svæðisfélög LS eru nú hvert af öðru að senda umsögn um sóknardagafrumvarpið. Félag smábátaeigenda á Austurlandi hafði þetta um frumvarpið að segja:

„Umsögn um frumvarp um stjórn fiskveiða 485. mál. Flm. Grétar Mar Jónsson, Jón Bjarnason

Aðalfundir félagsins hafa undanfarin ár ályktað um þetta atriði. Þess hefur alla tíð verið krafist að 23 dagar verði það lágmark sem hægt sé að sætta sig við í kerfi dagabáta.
Það er samhljóða þeim samþykktum sem gerðar hafa verið á aðalfundum Landssambands smábátaeigenda.
Það er því með béfi þessu lýst yfir ánægju með frumvarp þetta.

Með bréfi þessu er þess farið á leit við háttvirta sjávarútvegsnefnd Alþingis að
hún stuðli að því að þeirri miklu óvissu sem verið hefur um dagabáta ljúki .
Óskin um 23 daga lámark er sanngjörn og án allrar áhættu varðandi viðkomu
þorskstofnins við Íslandsstrendur.“

Umsögn félagsins er undirrituð af formanni þess, Gunnari Hjaltasyni.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231