Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Formaður Árborgar - maður hefur það á tilfinningunni að þarna sé komin ný tegund af þorski – jaðarþorskur! - Landssamband smábátaeigenda

Formaður Árborgar - maður hefur það á tilfinningunni að þarna sé komin ný tegund af þorski – jaðarþorskur!

| Athugasemdir (0)

Í dag hélt Árborg – félag smábátaeigenda á Suðurlandi félagsfund í Þorlákshöfn. Formaður Árborgar, Þorvaldur Garðarsson, opnaði fundinn með skeleggri ræðu. Hann sagði stóru ógnina í sjávarútvegi nú vera fiskverðið, sem hann líkti við hamfarir. Ýsan væri að seljast á þriðjungi þess verðs sem var fyrir ári og keila, langa og karfi á helmingi af verði frá sama tíma. „Því miður tel ég að botninum sé ekki náð“ sagði Þorvaldur. Hann sagði vertíðina hafa verið erfiða, einkennst af sunnan og suðvestan brælum, aflabrögð hefðu hins vegar verið góð.
Þorvaldur gerði páskastoppið að umtalsefni og deildi hart á tímasetningu þess. „Þar virðist ráða svokallaður „möppudýrahugsunarháttur“ sem einkennist af því að gera þolendum sem mest til miska. Ótrúleg væri sú ákvörðun að hefja páskastoppið á annan í páskum, í stað þess að fella það inn í páskana, dæmi um óskiljanlega stjórnunarhætti.“

Handahófskennd vinnubrögð Hafró

Hafrannsóknastofnun fékk einnig sinn skammt frá formanninum. „Handahófskennd vinnubrögð á þeim bæ, farið í loðnuleiðangur í vetur þar sem lítið fannst og kvótinn ákveðinn í samræmi við það. Skipstjórar mótmæltu, aftur leitað og þá virtist eitthvað meira hafa fundist og nýr kvóti gefinn út, þannig að allir fengu að veiða eins mikið og þeir gátu. En hvernig er þetta með þorskinn“, spurði formaðurinn. „Þar gilda allt aðrar reglur, mikið finnst af þorski – 25% meira og í netarallinu var það svo hér fyrir Suðurlandi að netin stífluðust af þorski, en þrátt fyrir þetta er tónninn gefinn um að ekkert verði bætt við. Talað um einhver jaðarsvæði – maður hefur það á tilfinningunni að þarna sé komin ný tegund af þorski – jaðarþorskur“! Þá sagði Þorvaldur ráðgjöf Hafró um keilu og löngu algjörlega út í loftið og greinilegt að þekking sérfræðinganna á þeim væri ákaflega takmörkuð. Í máli Þorvaldar kom fram að hann hefði til þessa ætíð stutt Hafró, en nú hefði hann miklar efasemdir.

Framkvæmd línuívilnunar til vansa fyrir ráðherrann

Í lok ræðu sinnar gerði Þorvaldur línuívilnunina að umtalsefni. „Ráðherra hefði með frumvarpinu trúlega sett íslandslandsmet í útúrsnúningi á því sem talað hefði verið um fyrir kosningar. Algerlega óskiljanlegt að hún skyldi ekki ná til allra dagróðrabáta hvaða aðferð sem þeir nota til að beita línuna. Þá bæru leikreglurnar varðandi framkvæmd hennar vott um áðurgreindan möppudýrahugsunarhátt“. Þorvaldur sagði nauðsynlegt að LS mundi beita sér hart í þessu máli þannig að línuívilnun yrði sú aðgerð sem talað var um og kosið var um í alþingiskosningunum fyrir réttu ári. Þorvaldur Garðarsson formaður Árborgar endaði ræðu sína á að hvetja sjávarútvegsráðherra og Alþingi til að festa sóknardagakerfi handfærabáta í sessi þannig að dagar yrðu ekki færri en 23.

Að lokinni ræðu Þorvaldar kynntu fulltrúar skoðunarstofanna Frumherja og Sýni skoðunarstofa starfsemi sína og þá þjónustu sem þeir mundu bjóða félagsmönnum Árborgar.

Örn Pálsson framkvæmdastjóri LS flutti fundarmönnum fréttir af gangi viðræðna við sjávarútvegsráðherra um sóknardagakerfið. Í máli hans kom m.a. fram að staðan væri erfið og ekkert hægt að segja til um hvaða hugmyndir ráðherra hefði í þessum efnum.

Í lok fundar var samþykkt eftirfarandi ályktun:

„Árborg, félag smábátaeigenda á Suðurlandi.
Félagsfundur, haldinn í Þorlákshöfn 13. apríl 2004

Fundurinn lýsir yfir miklum áhyggjum varðandi þróun verðlagsmála undanfarin misseri, þar sem verð á flestum fisktegundum hefur fallið mjög mikið og jafnvel hrunið.
Fundurinn telur þessa þróun verðlagsmála vera stærstu ógnina við smábátaútgerðina sem stendur.

Fundurinn telur ljóst að þar sem þorskstofninn hafi mælst mun stærri í nýafstöðnu togararalli heldur en á undanförnum árum, hljóti Hafrannsóknastofnun að mæla með töluverðri aukningu aflamarks í þorski á komandi fiskveiðiári.
Jafnframt telur fundurinn að óhætt sé að auka verulega við keilu og löngukvóta eða jafnvel taka þessar tegundir alveg úr kvótasetningu.

Fundurinn hvetur til þess að viðunandi lausn verði fundin varðandi málefni dagabáta og gólf verði sett í fjölda veiðidaga og verði miðað við ekki færri en 23 daga.

Fundurinn mótmælir harðlega þeim útúrsnúningi að miða línuívilnun eingöngu við landbeitta línu og krefst þess að allir dagróðrabátar minni en 100 brúttótonn sem róa með línu njóti línuívilnunar án tillits til þess hvernig línan er beitt.

Fundarmenn lýsa furðu sinni á þeirri tilhögun að láta páskastopp utan 4 sjómílna hefjast á annan í páskum í stað þess að hafa páskahátíðina inni í stoppinu.
Þessi tilhögun veldur óþægindum og tjóni fyrir sjómenn og útgerðarmenn og einnig landverkafólk og fiskvinnsluna í heild, og veldur lakari gæðum afurða.“

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231