Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Óskin um 23 daga lágmark er sanngjörn - Landssamband smábátaeigenda

Óskin um 23 daga lágmark er sanngjörn

| Athugasemdir (1)

Félag smábátaeigenda á Akranesi sendi eftirfarandi umsögn til sjávarútvegsnefndar Alþingis um sóknardagafrumvarpið sem nefndin hefur til meðferðar: „Aðalfundur félagsins hefur ályktað um þetta atriði. Þess hefur alla tíð verið krafist að 23 dagar verði það lágmark sem hægt sé að sætta sig við í kerfi dagabáta.
Það er samhljóða þeim samþykktum sem gerðar hafa verið á aðalfundum Landssambands smábátaeigenda.
Það er því með bréfi þessu lýst yfir stuðningi við frumvarp sem beðið er um álit á.
Samhliða þessari umsögn er þess farið á leit við háttvirta sjávarútvegsnefnd Alþingis að hún stuðli að því að þeirri miklu óvissu sem verið hefur um dagabáta ljúki. Óskin um 23 daga lágmark er sanngjörn og án allrar áhættu varðandi viðkomu þorskstofnsins við Íslandsstrendur.“
Undir umsögnina ritar Gísli Einarsson formaður félagsins.

1 Athugasemdir

Þegar þetta er skrifað hafa formaður og framkvæmdastjóri LS fundað stíft með ráðherra um lausn á málefnum sóknardagabáta.

Lítið er að frétta af þessum fundum en þó fær daganefndin að vera með á sumum þeirra en aðrir fundir eru leynilegri. Afstaða LS er ljós. Festa skal dagana í sessi hvað sem það kostar. Forysta LS hefur farið þá undarlegu og ófélagslegu leið að láta aðra félagsmenn en dagabátaeigendur álykta um framtíð sóknardagakerfisins. Þegar hugmyndir dagamanna um kvótasetningu bera á góma snýr LS útúr og vísar í samþykktir grásleppu og kvótakarla. Ég vil skora á þá félaga Örn og Artúr að hysja upp um sig brækurnar og vinna að þessu máli í samræmi við vilja og hugmyndir dagabátaeigenda. Þeir félagar hafa marg oft tjáð að þeir hafi ekkert umboð til að semja um varanlegan kvóta á dagabátana í því samhengi vil ég minna þessa höfðingja á það að þeir hafa að sama skapi ekkert umboð til að semja um neitt minna en 23 daga og það án allra takmarkana ef vísað er í þessar ólýðræðislegu ályktanir aðildarfélagana. Já ég kalla þetta ólýðræðislegar ályktanir þar sem þær eru fengnar fram í krafti annarra félagsmanna en dagabátaeigenda oft þvert á vilja þeirra svo sem á fundi í Ólafsvík á dögunum.

Ég get ekki betur séð en LS eigi að vinna fyrir dagamenn í þessu máli en ekki á móti eins og oft virðist. Það er alveg ljóst að ef LS verður uppvíst að því að hafna tilboði stjórnvalda um varanlega lausn á þessum málum á grundvelli þessara "undarlegu" ályktana þeirra, þá mun ég segja mig úr þessum kór fyrir fullt og allt enda hlýtur þá hagsmunum "dagakarla" að vera betur borgið innan sérstaks félagsskapar dagabátaeigenda.

Skoraði hefur verið á LS á félagsfundi aðildarfélags að láta framkvæma óháða skoðanakönnun um afstöðum eiganda sóknardagabáta um „framtíðarveiðikerfi“ þeim til handa.

Mig langar að spyrja forust LS hvort félagið hyggst verða við þessari áskorun og þá hvenær?

Einnig vil ég ÍTREKA spurningar til forsvarsmanna LS sem mag oft hefur verið beint var til þeirra hér á heimasíðunni. (Ég geri ráð fyrir að þeir veiti því athygli sem þar er skrifað)

1) Ef samið er um lausn á dagakerfinu þ.e. með gólfi í dagana þá hlítur að vera gert ráð fyrir að heildarafli bátanna fari ekki fram úr ákveðinni viðmiðun. Ef LS er að semja um gólf í daganna gegn því að ekki verði nein sóknaraukning frá því sem verið hefur þá hlítur umræðan með dagakerfinu að snúast um að bátarnir veiði ekki meira en 11-12 þús tonn á ári. Því er þá ekki raunhæft að þessir bátar fái að veiða um 9 þús tonn í kvótakerfi með þeirri hagræðingu sem í því felst?

2. Telur LS það rétta leið að láta kvóta- og grásleppukarla álykta um málefni sóknardagabáta á aðildarfélagsfundum LS?

3. Finnst LS ekkert athugavert við þá aðferðarfræði sína að boða til félagsfunda um allt land og safna ályktunum svæðisfélaga um stuðning við 23 daga gólf í sóknardagakerfið í krafti kvóta- og grásleppukarla?

4. Af hverju er ekki farin sú lýðræðislega leið innan LS að leyfa dagabátaeigendum að álykta sjálfir um sín mál án íhlutunar kvóta- og grásleppukarlanna sem eru með öllu vanhæfir til slíks?

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231