Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Snæfell mælir með Sýni skoðunarstofu ehf - Landssamband smábátaeigenda

Snæfell mælir með Sýni skoðunarstofu ehf

| Athugasemdir (0)

Snæfell - Félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi - hefur ákveðið að taka tilboði frá Sýni skoðunarstofu í skoðun á bátum hjá félagsmönnum. Eins og fram hefur komið voru 118 smábátaeigendur sem skrifuðu sig á lista þar sem stjórn Snæfells var gefið umboð til að óska tiboða.

Stjórn Snæfells hefur farið yfir þau 4 tilboð sem bárust og metur það svo að tilboð frá Sýni skoðunarstofu sé hagstæðast, einkum réði það ákvörðun stjórnarinnar að ekki er rukkað sérstaklega fyrir endurskoðanir, þær eru innifaldar í árgjaldinu. Stjórn Snæfells mun senda Sýni lista yfir nöfn þátttakenda og í framhaldi sendir Sýni uppkast af samningi til þeirra.
Samkvæmt tilboðinu verður árgjald fyrir skoðun báta, þar með talin hreinlætisskoðun:
Lengd báta 6 - 8 m kr. 25.000
“ 8 - 15 m kr. 30.000

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231