Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Sóknardagabátar - mestu landað í Bolungarvík á sl. fiskveiðiári - Landssamband smábátaeigenda

Sóknardagabátar - mestu landað í Bolungarvík á sl. fiskveiðiári

| Athugasemdir (0)

Nú þegar sóknardagabátar eru hver af öðrum að fara í sinn fyrsta róður á fiskveiðiárinu er ekki úr vegi að líta á nokkrar tölur frá sl. fiskveiðiári.
Alls lönduðu bátarnir í 58 höfnum. Mest færðu þeir að landi í Bolungarvík 1.648 tonn, í Grímsey var landað 1.281 tonni, þriðja hæsta löndunarhöfnin var Suðureyri 1.150 tonn og í fjórða sæti var Skagaströnd með 1.041 tonn.
Á Snæfellsnesi var mestu landað í Ólafsvík 579 tonnum, á Ströndum í Norðurfirði 615 tonnum, á Austurlandi var mestu landað á Djúpavogi 375 tonnum og á Reykjanesi var Sandgerði með mestan afla frá sóknardagabátum, 216 tonn.
Alls veiddu sóknardagabátar á sl. fiskveiðiári 11.725 tonn þar af 11.023 af þorski.
Fjöldi sóknardaga á sl. ári var 21, en er í ár 19.
Aflatölur sem hér hafa verið tilgreindar eru fengnar frá Fiskistofu.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231