Svæðisfélög Landsambands smábátaeigenda hafa nú sent sjávarútvegsnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um sóknardagakerfi smábáta þar sem kveðið er á um að sóknardagar skuli ekki verða færri er 23.
Þann 27. apríl s.l. sendi Smábátafélag Reykjavíkur eftirfarandi umsögn:
"Smábátafélag Reykjavíkur gerir ekki athugasemdir við frumvarp þetta.
Félagið hefur til margra ára ályktað á þann veg að settur verði lágmarksfjöldi sóknardaga í sóknardagakerfi handfærabáta og hefur krafan verið að fjöldi daganna verði aldrei minni en 23.
Þá er Smábátafélag Reykjavíkur eitt af svæðisfélögum Landssambands smábátaeigenda og bendir í því sambandi á ályktanir frá aðalfundum Landssambandsins sem verið hafa á sama veg.
Það er eindregin von Smábátafélags Reykjavíkur að Alþingi gangi til þess verks að ljúka þeirri óvissu sem ríkt hefur um skipan mála fyrir þennan bátaflokk og verði við þessum kröfum smábátaeigenda."











Skrifa athugasemd