Þessa vikuna hefur staðið yfir í Lissabon í Portúgal aðalfundur Alþjóðasamtaka strandveiðimanna og fiskverkafólks (World Forum of Fish Harvesters and Fishworkers, WFF). Setningarathöfnin var þann 23 maí, en fundinum lauk í dag.
Um 150 aðilar frá 35 þjóðum sátu fundinn.
LS hefur frá stofnun WFF árið 1997 tekið virkan þátt í starfinu og átt sæti í stjórn frá upphafi. Fulltrúar LS í Portúgal voru Arthur Bogason, Guðrún Pálsdóttir frá Flateyri og Oddbjörg Friðriksdóttir, skrifstofustjóri LS. Á mánudeginum 24. maí sneri Arthur hins vegar heim vegna þeirra atburða sem uppi voru og var Einar Guðbjartsson frá Flateyri samþykktur í hans stað fyrir Íslands hönd.
Fyrr í dag fóru fram kosningar til stjórnar og formennsku, en reglan innan samtakanna er að tveir aðilar, karl og kona, gegna formennskunni samtímis og semja sjálf um hlutverkaskiptingu. Fjórir voru í framboði til formennsku næstu þriggja til fjögurra ára, en kosningu hlutu Arthur Bogason og Margaret Nakato frá Uganda.
Frá því stofnsamningur samtakanna var samþykktur á aðalfundi í Frakklandi árið 2000 hefur staðið yfir skipulagning og uppbygging þeirra. Stutt er síðan að opnuð var skrifstofa WFF í Ottawa í Kanada og framkvæmdastjórinn, Pedro Avendano frá Chile ráðinn í fullt starf. Hans helsta verkefni hefur verið að afla fjár til rekstrarins og hefur þar miðað í rétta átt. Þá hefur meðlimum fjölgað undanfarið og í heild eru nú 40 þjóðir í WFF.
Hlutverk WFF er að standa vörð um rétt strandveiða og taka þátt á alþjóðlegum vettvangi í þeirri umræðu sem fram fer um málefni hafsins og fiskveiða. Samtökin eiga nú þegar sæti sem óháð félagasamtök hjá FAO á COFI fundunum (Nefnd FAO um fiskveiðar) ásamt undirnefnd hans. Eins og alkunna er, hafa málefni hafsins orðið æ fleirum hugðarefni, en því miður er margt af því sem kemst í hámæli víðsfjarri raunveruleikanum. Fiskimenn, ekki síst strandveiðimenn eru í augum fjölmargra samtaka, sem m.a. kenna sig við umhverfisvernd, helstu óvinir lífríkis heimshafanna og hafa á stefnuskránni að stöðva fiskveiðar – hverskonar. Á þessu eru vitaskuld ánægjulegar undantekningar, en eitt af hlutverkum WFF er að vera þarna á varðbergi.
Þá er ekki síður nauðsynlegt fyrir strandveiðimenn hvarvetna að hafa alþjóðlegan málsvara varðandi fjölmarga aðra þætti tengdum fiskveiðunum. Má þar nefna sívaxandi kröfur varðandi öryggismál, umhverfismerkingar, tækjabúnað og mengunarmál.
Nánast allir þeir sem sitja í stjórn WFF eða gegna formennsku eru í forystu félagasamtaka á sama vettvangi heima fyrir. Vinnureglan er sú að reyna að dreifa álagi jafnt yfir alla, en samtals skipa stjórnina 16 aðilar. Þannig er reynt að trufla sem minnst störfin heima fyrir, enda er hér um að ræða félagasamtök sem engin fjárráð hafa til að ráða fjölda manns til starfa.











Skrifa athugasemd