Í dag hélt sjávarútvegsráðherra blaðamannafund um fyrirhugaðar breytingar á veiðikerfi sóknardagabáta. Í kjölfar fundarins var gefin út fréttatilkynning sem birtist hér á heimasíðunni fyrr í dag.
Það veldur gríðarlegum vonbrigðum að í frumvarpinu sé ekki stöðvuð fækkun sóknardaga, heldur lagt betur í en nú er með því að taka 10% ákvæðið út. Þannig má segja að frumvarpið feli í sér mun lakari kost fyrir þá sem ekki velja kvótann heldur en gildandi lög fela í sér. Þau fækka sóknardögum um einn á hverju ári, en frumvarp sjávarútvegsráðherra gerir ráð fyrir að dögum fækki hlutfallslega að loknu næsta fiskveiðiári fari afli þáverandi sóknardagabáta umfram afla þeirra fiskveiðiárið 2002/2003.
Það sem hér er vakin athygli á gengur þvert á það sem sjávarútvegsráðherra kynnti sóknardaganefnd LS sl. mánudag um að sóknardagar yrðu að lágmarki 18.
Það er því nokkur kaldhæðni fólgin í að kynna hið nýja frumvarp á þann hátt að það feli í sér val. Áframhaldandi sóknardagar eða kvótasetning.
Auk þess að dögum heldur áfram að fækka verður óheimilt að hafa fleiri en 4 handfærarúllur um borð og dögum mun fækka um 2 verði hestaflaaukning á bátum undir 100, auk hlutfallslegrar fækkunar umfram 100 hestöfl. Þarna gengur sjávarútvegsráherra mun lengra en tillögur LS gerðu ráð fyrir og unnið var með í viðræðum hans og sóknardaganefndar LS.











Sælir.
Vonandi velja bara allir kvóta og þá er hægt að hætta að rífast og fara að huga að því hvernig sé hægt að fá sem mest verðmæti út úr veiðunum.
Kær kveðja
Örvar
Sæll Örvar,,,,
Er brottkast hluti af því,,,,,,,,,,,,,,
eða eins og einhver sagði í greinarskrifum sínum,,að velja stærri fisk´´
Kv Heimir
Sælir.
Það er enginn að tala um brottkast.
Það er verið að tala um olíusparnað, veiðarfærasparnað, sókn á svæði þar sem betri fiskur fæst þótt tonnatalan verði lægri. Sókn á haustin þegar betri verð fást, því hafa menn ekki þorað, allavega ekki hér í Breiðafirðinum þar sem algengur afli er 400 - 800 kíló á þeim árstíma. Svo mætti lengi telja en ég þarf að drífa mig í Baldur og leggja í það kostnað að vera fjarri heimili mínu og heimahöfn vegna þess að ég þarf að elta kílóin til Patreksfjarðar en ekki verðin.
Þannig er nú það.
Kær kveðja
Örvar
Stöndum saman og berjumst fyrir gólfi á dagana og látum þennan djöf... kvóta vera.. Ef þetta frumvarp verður að veruleika mun það verða til þess að handfæraveiðar hér við land leggjast af á innan við 10 árum, viljum við það?? Þetta er eina frelsið sem eftir er. Það þarf enginn að segja mér að allir þessir menn sem eru að berjast fyrir kvóta ætli sér að veiða hann á handfæri, það verða flestir fljótir að henda rúllunum í land og taka með sér línu til að fá sem mestan meðafla (og vilja menn þá ekki línuívilnun líka), eða selja frá sér kvótan. Þetta er ekkert annað en skamtímagróðrarleið. Ég mæli með því að Örvar og hans kvóta menn selji sig bara útúr þessu hrikalega dagakerfi og kaupi sér bara KVÓTABÁT. Þá fæst kanski friður til að vinna í því að fá gólf á dagana.
Kveðja Hermann
Vil ég koma á framfæri og minna framkvæmdarstjóra og formann LS á fjölmennan fund sem haldinn var hjá Snæfelli, smábáta eigenda á Snæfellsnesi í Ólafsvík þann 11.03 2004
Þar beindi Gísli Marteinsson til ykkar spurningu og óskaði eftir já eða nei svari við henni. Spurningin var svohljóðandi: “Ef sjávarútvegsráðherra lofaði eigendum dagabáta 7.200 tonnum af þorski og lokaði dagakerfinu hver yrðu viðbrögð ykkar við því.”
Svar ykkar var já og að þið mynduð samþykkja þetta strax fyrir hönd dagabátaeigenda.
Sp. Miðað við yfirlýsingu ykkar á fundinum, af hverju samþykktið þið ekki þetta frumvarp sjávarútvegsráðherrra? Og mælið með því við eigendur dagabáta þar sem ráðherra býður mun betur nú og að auki 18 sóknadaga fyrir þá sem vilja með rúllutakmörkum og vélartakmörkum sem þið gáfuð hugmyndir að án þess að hafa beint umboð eigenda dagabát við því.
Á þessum sama fundi var samþykkt tillaga um að fram færi óháð skoðunakönnun (Gallup) hjá Snæfelli og LS um vilja dagabátaeigenda. Hvernig er sú framkvæmd í raun?
Byggðasjónarmið : hjá Guðmundi Halldórssyni kemur fram að um byggðasjónarmið sé að ræða og Vestfyrðingar tapi miklum afla ef þetta fari fram. Sp. Er það ekki líka byggðarsjónarmið að dagabátar landi í heimabyggðum sínum enda eru þeir flestir frá öðrum stöðum en Reykjavík.
Torfi Sigurðsson. Ólafsvík.
Aðeins um frelsið.
Sumir sjá sóknardagakerfið í mjög rómantísku ljósi og tala um “frelsi skakarans” eða að þarna liggi síðasti votturinn af frelsi í íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu. Satt er að mönnum er frjálst að veiða eins mikið og þeir geta á 19 dögum. Það má líka umorða það: “Frelsið” er fólgið í að mega ekki nota dýrt atvinnutæki nema 19 daga á ári, mega ekki nota önnur veiðarfæri en handfæri og það má ekki nota bátinn á veturna, sama hversu gott veðrið er eða verð og fiskgengd. Fiskistofa fylgist með bátunum dag og nótt og það er glæpur að hreyfa dagabát úr höfn án þess að tilkynna í sérstakt eftirlitssímanúmer hvað sé nú verið að bralla, hvort sem verið er að fara í veiðiferð eða skemmtisiglingu. Þetta er nú frelsi skakarans.
Ég sé ekki af hverju handfæraveiðar ættu að leggjast af. Eru þær svona óhagkvæmar?? Ef svo er, er þá ekki rétt að menn velji sér sjálfir hvaða króka þeir nata til veiðanna? Hefur smábátafélagið ekki oft talað um hvað línuútgerð er atvinnuskapandi??
Ég tel hins vegar að handfæraveiðar muni ekki leggjast af. Sjálfsagt mun þeim fækka sem þær stunda eingongu en þegar´öllu er á botninn hvolft eru handfæraveiðar ódýr veiðiskapur, þegar menn geta hagað þeim að vild og sótt þegar menn vilja.
Ég myndi ekki hafa á móti því að prósentan til þeirra sem hafa hærri viðmiðun væri aðeins lærri og aðeins hærri til þeirra sem minni viðmiðun hafa, jafnvel 95% til þeirra sem eru með undir 20 tonn og þá eitthvað lærri á tonnin sem eru yfir 50 ef það mætti verða til að sætta menn á þetta.
Ég myndi nefninlega vilja sjá alla smábátaeigendur undir sama hatti. Þannig værum við sameinaðir en ekki sundraðir. Það að hafa 2 kerfi verður alltaf tilefni fyrir pólitíkusa til að slá sig til riddara, vitandi að sundrung innan okkar sjálfra verði til þess að þeir þurfi aldrei að standa við orð sín.
Örvar
Ég myndi ekki hafa á móti því að prósentan til þeirra sem hafa hærri viðmiðun væri aðeins lærri og aðeins hærri til þeirra sem minni viðmiðun hafa, jafnvel 95% til þeirra sem eru með undir 20 tonn og þá eitthvað lærri á tonnin sem eru yfir 50 ef það mætti verða til að sætta menn á þetta.
Einmitt.