Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu


Aflatölur


Skipaskrá


Veður




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Sjávarútvegsnefnd boðar LS til fundar - Landssamband smábátaeigenda

Sjávarútvegsnefnd boðar LS til fundar

| Athugasemdir (0)

Á morgun er forsvarsmönnum LS gert að mæta á fund sjávarútvegsnefndar Alþingis. Á dagskrá er sóknardagafrumvarpið og verður afstaða stjórnar LS til málsins kynnt.
Á fundi stjórnarinnar í dag var frumvarpið til umræðu. Stjórnarmenn voru á einu máli um að frumvarpið fæli ekki í sér valkosti sem leggja mætti að jöfnu, þar halli svo stórlega á sóknardagaleiðina að í raun sé verið að leggja sóknardagakerfið niður.
Fundurinn lagðist ekki gegn því að stillt sé upp valkostum, en þingmenn og ráðherra brýndir til að standa við orð og yfirlýsingar þess efnis að í sóknardagaleiðina verði tryggilega bundinn lágmarksfjöldi sóknardaga.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is