Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu



Leit í fréttum




Veður


Gæðamál


Virkt skipakort


Áhugavert




Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
Fax: 562 6590
ls@smabatar.is

 
Stjórn LS ályktar um sóknardagafrumvarpið - Landssamband smábátaeigenda

Stjórn LS ályktar um sóknardagafrumvarpið

| Athugasemdir (3)

Stjórn Landssambands smábátaeigenda kom saman til fundar þann
18. maí 2004 til að fjalla um sóknardagafrumvarp sjávarútvegsráðherra.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt:

Frumvarp sjávarútvegsráðherra mun að óbreyttu gera sóknardagakerfi handfærabáta að engu. Þessi staðreynd blasir við, þrátt fyrir að frumvarpið væri kynnt LS á þeim forsendum að það fæli í sér tvo jafngilda valkosti varðandi framtíðarskipan veiða sóknardagabáta. Sú er alls ekki raunin og að óbreyttu um hreinar þvingunaraðgerðir að ræða yfir í aflakvótakerfi. Stjórn LS leggst ekki gegn því að teflt sé fram valkostum, en gerir þá skýlausu kröfu að þá megi leggja að jöfnu. Krafa LS hefur verið að sett verði 23 daga gólf í sóknardagakerfi handfærabáta.

Sjái þingmenn sér ekki fært að standa við gefin fyrirheit um festingu lágmarksfjölda sóknardaga eins og sjávarútvegsráðherra sagði frumvarpið bera í sér, er engin framtíð í sóknardagakerfi frumvarpsins. Það er með öllu útilokað að taka þann málflutning alvarlega að menn geti vegið það til jafns við þann valkost að fara í krókaaflamarkið. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er framlenging sóknardagakerfisins sýndarmennska ein.

Nú hefur komið í ljós að til virðist gnótt veiðiheimilda sem ekki verða frá öðrum teknar, þegar ná skal því markmiði að stýra með aflakvótakerfi. Þessu hefur hingað til verið þveröfugt farið þegar um er að ræða sóknarstýringu.
Stjórn LS hefur ástæðu til að draga þá ályktun að hinn einbeitti vilji til að afleggja sóknardagakerfið þýði að hugað sé að enn frekari tilfærslum slíkra veiðiheimilda í því augnamiði að taka þetta skref til fulls.

Yfirlýst markmið stjórnvalda er að ná sátt við eigendur sóknardagabáta. Slík sátt næst ekki, ef ganga á þvert á vilja stórs hóps þeirra.
Landssamband smábátaeigenda hefur alla tíð verið boðið og búið til að vinna að sátt um þessi mál og því lýsir stjórn LS miklum vonbrigðum með vinnubrögð sjávarútvegsráðherra gagnvart forystu félagsins í þeim efnum.
Frumvarp hans endurspeglar orðróm sem stöðugt barst forystu félagsins til eyrna að væru þær hugmyndir sem unnið væri með í sjávarútvegsráðuneytinu. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir þar að lútandi var því þverneitað í viðræðum LS við ráðuneytið.

Stjórn LS krefst þess að frumvarpið verði fært til þess vegar að um jafnræði valkosta verði að ræða og brýnir hið háa Alþingi til þeirra verka.

Stjórn Landssambands smábátaeigenda

3 Athugasemdir

hvað er að ykkur, af hverju er þetta frumvarp ekki blásið upp í fjölmiðlum og þetta rætt þar. Mér finnst sem menn vilji keira þetta í hljóði bak við fjölmiðlafrumvarpið. Menn vita mis mikið um þetta og mín skoðun er sú að þetta er það allra verst sem getur komið fyrir okkar litlu byggðir. Menn koma ekki til með að geta gert út á 30 tonnum miða við þær skuldbyndingar sem flestir eru komnir í. Td menn sem keyptu báta á síðasta ári þurfa um 50 tonn svo að dæmið gangi upp.
Við sem ekki erum hlintir þessu látum nú heyra í okkur.

það er gott mál að sem flestir láti í sér heyra. það eiga allir rétt á því að fá að láta sína skoðun í ljós um ólíkustu málefni.hvort sem þeir eiga hagsmuna að gæta eða ekki. það hlýtur líka að vera sjálfsögð krafa, að þeir sem eiga og reka dagabáta séu spurðir álits um hvað þeim finnist að sé skást að gera varðandi þeirra framtíð.Hún er farin að teygja sig víða þessi barátta um hvað mér og fleiri dagabátaeigendum sé fyrir bestu. Einn segir að hann eigi rétt á því að ég landi 70% af afla mínum í hans NV heimahöfnum af því að ég gerði það 1998-2002.ég er ekki sammála.Afi gamli sem var fæddur í NV kjördæminu, var boðinn upp sem ódýrt vinnuafl á Snæfjallaströndinni, eftir því sem ég veit best í síðasta skipti um 1902. Hann fór suður um leið og hann fékk að taka sjálfstæða ákvörðun um það.þannig að þar lauk þeirri þjónustu af hálfu minna ættar. Í Reykjavík hitti hann ömmu,sem var þótt einkennilegt sé og fáir trúi kannski, að vestan(Skálavík). hún greyið átti börn með einum of mörgum mönnum, þess vegna fór hún suður(ég held að Kristinn H sé ekki skyldur mér).Annar segir að ég sé hluti af lífsstíl. Enn er ég ekki sammála. ég tel að ég sé ekki sýningargripur, sem sé að mestu leyti nothæfur sem módel fyrir túrista á góðviðrisdögum. Sá þriðji segir að ég sé braskari af því að ég vilji fá kvóta í staðinn fyrir klukkutímana sem mer eru úthlutaðir í dag.Og enn er ég ósammála. það er fullt af mönnum í kringum mig sem einu sinni voru í daga kerfi og völdu sig inní kvóta, ég bý á hornafirði, ég hef ekki heyrt neinn þeirra biðja um daga aftur í stað þess sem þeir hafa í dag.þeir hafa verið að leigja frá sér þegar lítið fiskast og til sín þegar meira fiskast. það er í mínum eyrum og augum hagræðing en ekki brask.ég er ekki að gera lítið úr því fólki sem býr í nv hluta landsins í dag. það sem ég er að reyna að segja er að það er ekki hægt að áfellast aðra fyrir að vilja ekki það sama og þeim hentar . það er ekki hægt að setja mönnum stólinn fyrir dyrnar með átthagafjötrum lengur. það er dæmt til að mistakast.sagan segir okkur það. Ég kæri mig heldur ekki um að vera pólitískur leiksoppur einhverra frjálslyndra glaumgosa(hvort sem Arthur ætli í framboð þar eða ekki)eða annarra þverhausa. Ég er bara trillukarl í dagakerfinu,og ég vil að mín rödd heyrist. Ég geri líka þá kröfu að það sé leitað eftir álitum manna þaegar verið er að plotta með fjöregg þeirra og þeirra nánustu.það hefur ekki verið gert undanfarið finnst mér í dagafrumv. málum.En það er alltaf hægt að snúa við blaðinu og gera betur.........kv oli v

Sæll oli V
Ég get ekki orð bundist,menn eru farnir að seilast langt þegar þeir draga fram ástarlíf ömmu sinnar og nota það sem rök fyrir því að rústa dagakerfið, setja fjölda manns á hausinn og að gera fáa moldríka.Þeir sem stóðu í leynilegum viðræðum á bakvið kjörna fulltrúa og stóðu að leynilistanum hefðu mátt hafa í huga orðin sem þú notar”að leita álits”og”plotta með fjöregg þeirra og þeirra nánustu”Ein smá athugasemd í viðbót”það er alltaf hægt að snúa við blaðinu og gera betur”Reyndu það næst þegar þú ferð á klósettið.Það er ekki hægt að laga allt sem að er eyðilagt.
Kveðja Þorsteinn

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231