Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Umsögn LS um sóknardagafrumvarpið - Landssamband smábátaeigenda

Umsögn LS um sóknardagafrumvarpið

| Athugasemdir (0)

Í gær rann út frestur til að skila umsögnum til sjávarútvegsnefndar Alþingis um sóknardagafrumvarp sjávarútvegsráðherra. Umsögn LS er eftirfarandi:

Inngangur

Í upphafi þessarar umsagnar skal það tekið fram að frumvarp það sem hér er til umsagnar er ekki samkomulag milli LS og sjávarútvegsráðherra. Frumvarpið birtist LS með þeim hætti að sjávarútvegsráðherra kallaði sóknardaganefnd LS á sinn fund 10. maí sl. Þar tilkynnti ráðherrann ákvörðun sína um framlagningu frumvarps um sóknardagabáta. LS var kynnt efni frumvarpsins og gerði athugasemd við annan „valkost“ frumvarpsins, sem kvað á um að sögn ráðherra 18 daga gólf í sóknardaga. LS sagði það sína skoðun að til að valkostir væru jafngildir þyrfti lágmarksfjöldi sóknardaga að vera 20. Ráðherra var á annarri skoðun hann sagði 18 daga vera skurðpunktinn. Auk þessa kom fram á fundinum að sóknartakmarkanir yrðu þær sömu og um hafði verið rætt milli LS og ráðherra. Það urðu LS gríðarleg vonbrigði þegar í ljós kom við lestur frumvarpsins að ofanritað var hvergi að finna í frumvarpinu. Velji menn að halda áfram í sóknardagakerfinu bíður þeirra lakara veiðikerfi en þeir nú eru í, sóknardögum mundi fækka hlutfallslega, en ekki 10% eins og nú er, auk þess sem sóknartakmarkanir voru mun meiri en rætt hafði verið um. Vegna ákvæðisins um hlutfallslega fækkunar sóknardaga miðað við afla sl. fiskveiðiárs, yrði fullkomin óvissa með hvað framtíðin bæri í skauti sér. Valkostirnir eru því að mati LS ekki jafnir eins og ráðherra hafði kynnt. Til styrktar þessari skoðun skal bent á 3. ml. 3. mgr. í 1. gr. athugasemda við frumvarpið: „Hver sá viðmiðunrafli verður er ekki unnt að áætla fyrr en fyrir liggur hvaða bátar verða í sóknardagakerfinu á næsta fiskveiðiári.“

Meginefni

LS leggst ekki gegn því að teflt sé fram valkostum, en gerir þá skýlausu kröfu að þá megi leggja að jöfnu. Það á sér ekki fordæmi þegar aðilum er boðið inn í annað veiðikerfi að ekki sé samhliða höfð opin leið fyrir þá sem engan vegin geta fært sig milli veiðikerfa. Frumvarpið er þessa eðlis og leggur LS ofuráherslu á að tekið verði tillit til þeirra sjónarmiða sem hér hafa komið fram. Sjái þingmenn sér ekki fært að standa við gefin fyrirheit um festingu lágmarksfjölda sóknardaga eins og sjávarútvegsráðherra sagði frumvarpið bera í sér, er engin framtíð í sóknardagakerfi frumvarpsins. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er framlenging sóknardagakerfisins sýndarmennska ein.

Tillögur að breytingum

1. gr. a. Í stað „fjórar handfærarúllur“ komi: fimm handfærarúllur. b. Í stað 1. ml. komi: Á fiskveiðiárinu 2004/2005 skal fjöldi sóknardaga vera 20. 4. ml. falli brott. c. Í stað „10. maí 2004“ komi: gildistöku laganna. Í stað „100“ í tl. 1 og 2 komi: 200. Í stað „fækkar sóknardögum um tvo“ í 1. tl. komi: fækkar sóknardögum um einn“. Auk framangreindrar breytinga er óskað eftir að 2. ml. 1. mgr. 6. gr. falli brott.

3. gr.
Í 2. ml. 3. tl. komi: við gildistöku laganna, í stað „10. maí 2004“.

Við frumvarpið komi ný grein sem verði 4. gr. þannig að 4. gr. frumvarpsins verði 5. gr.

4. gr.
1. tl. 7. gr. laganna falli brott.

Lokaorð

Það er mat LS að breytingar á frumvarpinum samkvæmt framangreindu muni tryggja að frumvarpið feli í sér tvo jafngilda kosti fyrir eigendur sóknardagabáta þegar þeir taka ákvörðun um veiðikerfi til framtíðar.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231