Hagstofa Íslands hefur sent frá sér fjölrit, Hagtíðindi – Sjávarútvegur. Þar er gerð grein fyrir útflutningi sjávarafurða 2003 magni og verðmætum. Til hliðsjónar eru einnig birtar tölur frá 2002 og lengra aftur í tímann. Fjölmargt áhugavert kemur þarna fram. Hér á eftir verður þorskinum gerð skil.
Heildarmagn þorskafurða er nánast óbreytt milli ára, 112.789 tonn 2002 á móti 112.701 tonn á sl. ári. Verðmætið minnkar hins vegar um 9,5% eða um 4,6 milljarða, var í fyrra 43,9 milljarðar. Í magni og verðmætum talið fluttum við mest út af blautverkuðum saltfiski 28.540 tonn, 2.180 tonnum minna en 2002, sem skilaði okkur 12,6 milljörðum, samdráttur á hvert kg 5,7%.
Fjórðungs aukning varð í útflutningi á ferskum þorski og 9% í ferskum þorskflökum. Flutt voru út 6.621 tonn af ferskum þorski og 7.830 tonn af ferskum flökum. Samtals nam útflutningsverðmæti ferskra þorskafurða tæpum 6,5 milljarði, kílóverð lækkaði um 6,8% í heilum þorski og 5% í flökum.
Magnaukning varð í sjófrystum flökum um 1.600 tonn fór í 14.603 tonn, verðmætin drógust hins vegar saman um hálfan milljarð sem svarar til 17,7% lækkunar á hvert kíló, 93 kr/kg. Í samanburði við fersk flök var kílóverð þeirra 48% hærra en sjófrystra þorskflaka.











Skrifa athugasemd