Þegar liðnir eru fjórir mánuðir frá því línuívilnun í ýsu og steinbít tók gildi kemur í ljós að hún hefur komið í hlut báta sem gerðir eru út frá 35 útgerðarstöðum. Alls hefur ívilnunin komið í hlut 171 báts. Þannig hafa þessir bátar aukið kvóta sinn um 240 tonn í ýsu og 333 tonn í steinbít. Umreiknað í afla þessara báta á tímabilinu er hér um að ræða 1.790 tonn af ýsu og 2.315 tonn af steinbít.











Skrifa athugasemd