Eins og kunnugt er brást grásleppuveiðin nánast í öllum Faxaflóa þessa vertíð og reyndustu menn muna ekki aðra eins ördeyðu í áratugi. Þessar miklu breytingar eru mönnum ráðgáta því lítið er vitað um hegðun grásleppunnar.
Þetta er annað árið í röð sem vertíðin hefst 1. apríl í Faxaflóa. Svipað var upp á teningnum og á síðasta ári, fyrsta lögn gaf nokkra veiði, en síðan ekki söguna meir. Tíðarfarið var óvanalega erfitt í apríl og maí sl þar sem stöðugar suðvestan áttir og ókyrr sjór gerðu mönnum mjög erfitt að athafna sig. Reynsla þessa árs vekur þá spurningu hvort skynsamlegt sé að hefja veiðar svo snemma.
Á fundi stjórnar Smábátafélags Akraness þann 7. júní sl var ákveðið að fara þess á leit við stjórnvöld að yfirstandandi vertíð verði framlengd um 20 daga, eða til 20. júlí. Það er mat stjórnarinnar að nauðsynlegt sé að kanna hvort grásleppan sé í göngu í júlímánuði eins og þekktist áður fyrr og þá í framhaldi að breyta veiðitímabili næsta árs.
Flestir grásleppukarlar á Akranesi eru löngu hættir veiðum vegna ördeyðunnar, en nokkrir þráast enn við og væru væntanlega til í framangreinda athugun.











Ég styð þessa tillögu um framlengingu en ekki að færa tímabilið aftur til 20 apríl.Sótti um framlengingu í fyrra en fékk synjun.