Í dag sendir Fiskistofa eigendum sóknardagabáta bréf sem inniheldur upplýsingar um væntalegt krókaaflamark. Alls eru það 291 útgerðir sem bréfið er sent til. Krókaaflamarksbátum fjölgar því um 248 1. september nk., en 43 útgerðum er veittur aðlögunartími að kerfinu í eitt eða tvö ár með því að vera áfram í sóknardagakerfinu með 18 daga hvort ár.
Þegar tekið er mið af þorskveiðiheimildum þessa fiskveiðiárs koma 9.800 tonn til úthlutunar og því verður meðaltalið 33,4 tonn á hvern bát.
Í bréfinu er útgerðarmönnum veittur frestur til 10. júli nk. að velja um hvort fiskveiðiáranna skuli haft til viðmiðunar fyrir krókaaflamarkið og gera athugasemdir við aflatölur.











Heil og sæl, vitið þið nokkuð hvernig fjöldinn skiptist niður á einstaka landshluta, ég er aðallega að spá hversu margir eru hérna á Vestfjörðunum?
Bestu kveðjur,
Kristinn Hermannsson – bb.is
þann 1. september 2003 voru 69 bátar skráðir á vestfjörðum. 4 á Bíldudal 9 á Brjánslæk 10 á Bolungarvik 17 á Patreksfirði 7 á Tálknafirði 7 á Flateyri 6 á Súðavík 4 á suðureyri 3 á Þingeyri og 2 á Ísafirði.
Á Snæfellsnesi voru 41 í Snæfellsbæ 10 í Stykkishólmi 5 í Grundafirði