Í gær, 7. ágúst, var síðasti dagur sem grásleppuveiðar voru heimilaðar á þessu ári. Þá lauk veiðum í innanverðum Breiðafirði og á Ísafjarðardjúpi. Vertíðin nú byrjaði óvenju snemma eða 5. mars á svæðinu sunnan Garðskaga. 15. mars bættust svo Strandamenn í hópinn og 20. mars hófust veiðar á Norður- og N-Austurlandi. 1. apríl í Faxaflóa og utanverðum Breiðafirði, 5. apríl á Vestfjörðum og síðast 10. maí á innanverðum Breiðafirði. Á öllum svæðunum 8 voru veiðar heimilaðar í 90 daga. Almennt voru veiðimenn sáttir við veiðitímann, helst var það í Faxaflóa að menn telja að færa eigi veiðitímann í upprunalegt horf, til 20. apríl.
Í upphafi vertíðar tilkynnti LS lágmarksviðmiðunarverð 888 evrur. Það verð skilaði veiðimönnum 72 þúsund krónum fyrir hverja fulluppsaltaða tunnu af grásleppuhrognum. Verðið hefur að mestu haldið út vertíðina, þó vitað sé að einhverjir veiðimenn hafi fengið hærra verð í útflutningi.
Heildarveiði á vertíðinni voru 11.500 tunnur, sem er þriðja besta vertíðin á sl. 10 árum, aðeins í fyrra (12.700) og 1997 (13.385) veiddist meira.











Hvar hefur það komið fram að Grásleppuveiðimenn við Faxaflóa vilji færa veititímann til fyrra horfs? Sjálfur er ég sannfærður um að ekki sé ráðlegt að fara í fyrra horf, heldur sé skynsamlegra að færa veiðitímann framar miðað við reynslu síðustu tveggja ára, þ.e.a.s.Grásleppan er í skörpustu göngunni mánuði fyrr en áður var. Mín skoðun er að skynsamlegt sé að byrja veiðitímann í Faxaflóa 10.Mars á næsta ári og ljúka vértíð um 10Júní.