Sjómenn sem verið hafa á handfæraveiðum út af sunnanverðum Vestfjörðum og Breiðafirði að undanförnu hafa orðið varir við lengjur all langar í sjónum. Þær eru rúmur sentimetri á breidd og samsettar með hringlaga augum, en hlekkirnir ferkantaðir. Að sögn viðmælenda heimasíðunnar eru þetta einna líkast keðjum. Þetta festist á handfærakrókana og koma upp þrír til fjórir hlekkir á hvern krók. Augun sem fyrr eru nefnd hafa svartan blett í miðju sem virðist einna líkast hrogni. Menn hafa velt því mikið fyrir sér hvað þarna er á ferðinni. Flestir telja þetta tengjast hrygningu skötusels.
Ætla má ef þetta er rétt að þá hafi hrygning skötuselsins gengið afar vel sem vonandi er ávísun á stækkandi veiðistofn.











Skrifa athugasemd