Þann 12. ágúst sl. gaf sjávarútvegsráðuneytið út 7 reglugerðir. Hér á vefnun hefur verið gerð grein fyrir tveimur þeirra, línuívilnun og hámarksmöskvastærð í þorskfisknetum. Nú verður vikið að reglugerð um úthlutun sérstakra aflaheimilda til krókaflamarksbáta.
Rúmum 3 mánuðum eftir að þorskaflahámarkið var lagt af, 14. desember 2001, og krókaaflamark tekið upp samþykkti Alþingi lög sem bættu verulegu magni við veiðiheimildir krókaaflamarksbáta í ýsu, steinbít og ufsa. Auk þess að hlutdeild þeirra var hækkuð í þessum tegundum var ákvæði sem heimilaði sjávarútvegsráðherra að úthluta á hverju fiskveiðiári allt að 1.000 tonnum af ýsu og steinbít og 300 tonnum af ufsa til krókaaflamarksbáta sem gerðir væru út frá sjávarbyggðum sem að verulegu leyti væru háðar veiðum þeirra. Ráðherra hefur nýtt þessa heimild að fullu öll árin.
11. desember 2003 var lögum um stjórn fiskveiða breytt og línuívilnun samþykkt. Þá var einnig ákveðið að framangreindar veiðiheimildir yrðu minnkaðar um helming á næstu tveimur fiskveiðiárum og féllu niður af þeim tíma liðnum, 2006/2007. Til upprifjunar er hér birtur kafli úr nefndaráliti sjávarútvegsnefndar þar sem vikið er að þessari breytingu.
„Samhliða upptöku línuívilnunar til dagróðrabáta er lagt til að aflaheimildir sem ráðherra hefur haft til úthlutunar til krókaaflamarksbáta sem gerðir eru út frá sjávarbyggðum sem að verulegu leyti eru háðar veiðum krókaaflamarksbáta, skv. 3. mgr. 9. gr., verði skertar í tveimur áföngum og loks aflagðar í lok fiskveiðiársins 2005/2006. Með sama hætti er lagt til að aflaheimildir sem Byggðastofnun hefur haft til ráðstöfunar til að styðja byggðarlög sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi verði aflagður í tveimur áföngum. Til mótvægis við niðurfellingu þessara aflaheimilda er lagt til, auk framangreindrar línuívilnunar, að ráðherra geti ráðstafað eftirstöðvum af þeim 12.000 lestum sem hann hefur til að mæta áföllum sem fyrirsjáanleg eru vegna verulegra breytinga í aflamarki einstakra tegunda, sbr.1. mgr. 9. gr. laganna, til minni byggðarlaga sem annaðhvort hafa lent í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum á bolfiski eða til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í byggðarlögunum.“
REGLUGERÐ nr. 670, 12. ágúst 2004, um úthlutun sérstakra aflaheimilda til krókaaflamarksbáta á fiskveiðiárinu 2004/2005.
1. gr.
Fiskistofa skal á fiskveiðiárinu 2004/2005 úthluta 500 lestum af ýsu, 500 lestum af steinbít og 150 lestum af ufsa, miðað við óslægðan afla, til krókaaflamarksbáta samkvæmt reikniforsendum reglugerðar nr. 283, 9. apríl 2002, um úthlutun afaheimilda á fiskveiðiárinu 2001/2002, skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Við skiptingu aflaheimildanna milli byggðarlaga og einstakra skipa innan þeirra skal miða við magn tilgreint í reglugerð nr. 283/2002 og skerða síðan úthlutun til einstaks báts um 50% frá úthlutun á fiskveiðiárinu 2003/2004 í þorskígildum reiknað.
2. gr.
Aðeins skal úthluta þeim bátum sem uppfylltu skilyrði reglugerðar nr. 283, 9. apríl 2002, til úthlutunar, enda séu þeir enn skráðir frá sömu sjávarbyggð við útgáfu reglugerðar þessarar. Hafi eigandi báts, sem úthlutun hlaut á fiskveiðiárinu 2002/2003, skv. reglugerð nr. 600, 9. ágúst 2002, selt þann bát sinn er heimilt að úthluta öðrum báti í hans eigu, sem skráður er í sömu sjávarbyggð, þeim aflaheimildum, sem hinn seldi bátur hefði annars fengið, enda hafi allar aflaheimildir verið fluttar milli bátanna.
Engum báti skal úthlutað meiri aflaheimildum samkvæmt reglugerð þessari en sem nemur því magni, sem viðkomandi bátur hefur landað í hlutaðeigandi sjávarbyggð á tímabilinu 1. ágúst 2003 til 31. júlí 2004 samkvæmt upplýsingum úr aflaupplýsingakerfinu Lóðs.
3. gr.
Reglugerð þessi er gefin út á grundvelli b. liðar 2. gr. laga nr. 147, 20. desember 2003, um breytingu á lögum nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og komi til framkvæmda 1. september 2004.
Sjávarútvegsráðuneytinu, 12. ágúst 2004.









Skrifa athugasemd