Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Smábátar með 22,5% af heildarþorskaflanum 2003. - Landssamband smábátaeigenda

Smábátar með 22,5% af heildarþorskaflanum 2003.

| Athugasemdir (0)

Hagstofa Íslands sendi frá sér 30. júlí sl. Hagtiðindi, Sjávarútvegur – Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2003. Þar kemur m.a. fram að heildarafli smábáta 2003 var 72 þúsund tonn, þar af var þorskafli þeirra 46.373 tonn eða 22,5% heildaraflans í þorski.
Skipting milli einstakra flokka smábáta var þannig:
Sóknardagabátar – heildarafli 11.400 tonn, þar af var þorskur 94% aflans eða 10.720 tonn.
Smábátar á aflamarki – heildarafli 15.900 tonn, þar af þorskur 11.291 tonn.
Krókaflamarksbátar – heildarafli þeirra var 44.700 tonn, þorskur var 54% eða 24.362 tonn, ýsa 9.900 tonn og steinbítur 6.500 tonn.

Skrifa athugasemd

 

efnisyfirlit síðunnar

Hönnun og umsjón: GB hönnun ehf, Klapparstíg 28, 101 Reykjavík, augl@smabatar.is, s. 699 7231