Þorskafli nýliðins fiskveiðiárs kemur til með að verða um 20 þús. tonnum meiri en fiskveiðiárið 2002/2003, sem er 9% aukning. Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu varð þorskaflinn 224 þús. tonn, af ýsu var landað rúmum 78 þús. tonnum, ufsi 56 þús. og steinbítur13.253 tonn.
Auk aukningar í þorskafla jókst ýsuaflinn um 29% tæp 22.600 tonn, ufsinn rúm 15%, 8.500 tonn, en útgefnar veiðiheimildir í steinbít náðust ekki. Heildarafli í steinbít var ákveðinn 16 þús tonn en aðeins veiddust rúm 80% af þeim eða 13.253 tonn.
Heimild: fiskistofa.is











Skrifa athugasemd